Skemmtiferðaskip verði bönnuð í miðbæ Amsterdam Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 21. júlí 2023 08:36 Innan tíðar munu skip á borð við þetta ekki fá að koma til hafnarinnar í miðbæ Amsterdam. Vísir/Getty Borgaryfirvöld í Amsterdam í Hollandi hafa ákveðið að loka fyrir komur skemmtiferðaskipa til miðbæjarins.
Markmiðið er að draga úr fjölda ferðamanna í miðbænum og einnig að draga úr mengun. Tillagan var samþykkt í borgarstjórn Amsterdam og segja flutningsmenn að skemmtiferðaskip samræmist ekki markmiðum borgarinnar um sjálfbærni. Þetta þýðir að aðalkomustaður skemmtiferðaskipa til Amsterdam, sem er í grennd við aðaljárnbrautarstöð borgarinnar mun loka. Óljóst er þó hvenær af þeirri lokun verður en málið á eftir að koma inn á borð framkvæmdastjórnar borgarinnar. Í kjölfarið á ákvörðun borgarstjórnarinnar sá hafnarstjórinn í Amsterdam sig tilneyddan til að vekja athygli á því að enn sé ekkert ákveðið með tímaramma lokunarinnar og að engin röskun verði á starfsemi hafnarinnar á næstunni. Í Amstedam, eins og sumstaðar annarsstaðar hafa skemmtiferðaskipin orðið að einskonar tákni fyrir offjölgun ferðamanna og var tillagan samþykkt með miklum meirihluta í borgarstjórninni. Um tuttugu milljónir manna koma til Amsterdam á hverju ári og margir borgarbúar eru orðnir langþreyttir á troðningnum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Holland Umhverfismál Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira