Japan valtaði yfir Spán og mætir Noregi Sindri Sverrisson skrifar 31. júlí 2023 09:03 Hinata Miyazawa er orðin markahæst á HM með fjögur mörk. Getty/Maja Hitij Japan rúllaði með afar sannfærandi hætti yfir Spán, 4-0, í lokaumferð C-riðils HM kvenna í fótbolta. Bæði liðin fara þó áfram í 16-liða úrslitin eins og ljóst var fyrir leik.
Hinata Miyazawa skoraði tvö marka Japans og er orðin markahæst á mótinu með fjögur mörk, en Japan vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni og það án þess að fá á sig mark, með markatöluna 11-0. Japan mætir því Noregi í 16-liða úrslitunum en Spánn mætir Sviss, sigurliði A-riðils. Japanar refsuðu Spánverjum ítrekað með skyndisóknum í fyrri hálfleik og voru 3-0 yfir að honum loknum. Miyazawa skoraði fyrst á tólftu mínútu eftir frábæra stungusendingu Jun Endo, lagði svo upp mark fyrir Riko Ueki sem endurgalt greiðann þegar Miyazawa kom Japan í 3-0 á 40. mínútu. Spánn sá aldrei til sólar í seinni hálfleik og Minami Tanaka gerði fjórða mark Japans með laglegum hætti tíu mínútum fyrir leikslok. Í hinum leiknum í C-riðli vann Sambía 3-1 sigur gegn Kosta Ríka en liðin voru bæði stigalaus fyrir leikinn og áttu ekki lengur von um að komast áfram í 16-liða úrslitin. Nú klukkan 10 ráðast svo úrslitin í B-riðli þar sem Kanada og Ástralía mætast annars vegar, og geta aðeins komist bæði áfram ef þau gera jafntefli og Nígería, topplið riðilsins, tapar gegn Írlandi sem er úr leik.
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjá meira