Lífið

Glæsi­legasta golf­mót landsins

Íris Hauksdóttir skrifar
Inga Tinna stofnandi og eigandi Dineout sá fyrir stórglæsilegu golfmóti um helgina sem leið. 
Inga Tinna stofnandi og eigandi Dineout sá fyrir stórglæsilegu golfmóti um helgina sem leið.  aðsend

Frábær þátttaka og mikil gleði var á opna Dineout mótinu sem fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar síðastliðinn laugardag.

Mótið er haldið í þriðja sinn en með hverju árinu hafa vinsældir þess aukist. Yfir 220 manns mættu til leiks og veðrið lék við keppendur. Um er að ræða eitt glæsilegasta golfmót landsins en töluvert færri komust að en vildu og var uppbókað á mótið aðeins þremur dögum eftir að skráning opnaði.

Skemmtidagskrá frameftir kvöldi

Fjöldi fólks úr veitingabransanum tók þátt í mótinu, eigendur vinsælustu veitingastaða landsins ásamt fleirum sem allir áttu það sameiginlegt að skemmta sér konunglega þennan dag. Mótið endaði svo með ljúffengum mat og skemmtun á Blik Bistro þar sem Eyfi spilaði fyrir keppendur fram eftir fallegu sumarkvöldi.

Veglegir vinningar

Vinningaskráin var stórglæsileg og samanstóð meðal annars af gjafabréfum hjá Icelandair, skartgripum frá Vera design, iPhone, gjafakörfum, vínflöskum, golfvörum frá Prósjoppunni, raftækjum ásamt fjölda gjafabréfa á flotta veitingastaði eins og Sjávargrillið, Apotek Kitchen & bar, Matarkjallarann, Fiskmarkaðinn, Monkeys, Nauthól, Brass, Braggann, Blik Bistró og Tapas barinn. Andvirði vinninga var rúmlega tveggja milljónir króna.


Vinningshafar í fyrstu þremur sætum á mótinu voru eftirfarandi:

1.sæti – Davíð Stefán Guðmundsson og Guðmundur Sigmarsson. 58 högg.

2.sæti – Jóhann Gunnar Þórarinsson og Guðlaugur Hrafn Ólafsson. 58 högg.

3.sæti - Elías Bóasson og Jón Arnar Jónsson. 59 högg.


Hér má sjá myndir frá golfskemmtuninni. 

Arnar og Andri eigendur Kalda bars og Dönsku kráarinnar ásamt Ingu Tinnu eiganda Dineout. aðsend

Bjarni, Ingibjörg, eigandi Pure deli, Jói Fel og Inga Tinna. aðsend

Logi Geirsson handboltakappi og kærasti Ingu Tinnu sló gullkúlu á mótinu. aðsend

Sigurvegarar kvöldsins hvað varðar flottustu búningarnir. aðsend

Gylfi Einarsson og Hjörvar Hafliðason voru reffilegir í partýinu. aðsend

Matgæðingurinn knái, Jói Fel hélt baneitraða ræðu í byrjun kvölds. aðsend

Söngvarinn ástæli, Eyjólfur Kristjánsson ásamt þeim Söndru og Sigríði. aðsend

Áslaug Árnadóttir, Harpa Ómarsdóttir og Inga Tinna við golfvöllinn. aðsend

Emil, Daníel, Róbert og Einar.aðsend

Sindri Viðarsson og Þorgerður Atladóttir.aðsend

Áslaug, Atli Albertsson, Sigurður Páll og Inga Tinna. aðsend

Fyrrum fótboltakappinn Gylfi Einars vígalegur á golfvellinum. aðsend

Verðlaunin voru ekki af verri endanum. aðsend

Tengdar fréttir

Inga Tinna og Logi Geirs nýtt stjörnupar

Inga Tinna Sigurðardóttir stofnandi og framkvæmdarstýra Dineout og Logi Geirsson fyrrum landsliðsmaður í handbolta og einkaþjálfari eru nýtt par.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.