Sigur hjá Stjörnunni eftir maraþonleik og vítaspyrnur Smári Jökull Jónsson skrifar 9. september 2023 14:28 Gunnhildur Yrsa lék með Stjörnunni í dag. Vísir/Hulda Margrét Stjarnan vann sigur á Sturm Graz í forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir framlengdan leik og vítakeppni. Úrslit réðust ekki fyrr en í níundu umferð vítaspyrnukeppninnar.
Leikurinn í dag var leikur um 3. sæti í riðli í forkeppni Meistaradeildarinnar en eftir tap Stjörnunnar á miðvikudag gegn Levante var ljóst að liðið ætti ekki lengur möguleika á að fara áfram í riðlakeppnina. Stjarnan var öflugra liðið í dag en liðin áttu í erfitt með að finna netmöskvana. Stjörnukonur fengu alls tólf hornspyrnur í venjulegum leiktíma og áttu mun fleiri skot á markið heldur en leikmenn Sturm Graz. Staðan í hálfleik var markalaus og það var hún einnig í leikslok. Því varð að framlengja leikinn. Framlengingin varð sömuleiðis markalaus og grípa þurfti til vítakeppni til að fá fram úrslit. Bæði lið misnotuðu eina vítaspyrnu í fyrstu fimm umferðunum og skoruðu síðan í fyrstu umferð bráðabanans. Í annarri umferð bráðabana misnotaði Sturm Graz sína spyrnu og það gerði Anna María Baldursdóttir fyrir Stjörnuna sömuleiðis. Það var svo ekki fyrr en í níundu umferð bráðabanans sem úrslitin réðust. Þá klikkaði leikmaður Sturm Graz á vítapunktinum en reynsluboltinn Málfríður Erna Sigurðardóttir skoraði fyrir Stjörnuna. Stjarnan nær því í sigur en er engu að síður úr leik í Meistaradeildinni.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Stjarnan Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Körfubolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Fleiri fréttir „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Sjá meira