Snæfríður Sól á meðal þeirra bestu í Evrópu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2023 10:30 Snæfríður Sól Jórunnardóttir er búin að slá sautján Íslandsmet og árið 2023 hefur verið mjög flott hjá bestu sundkonu Íslands í dag. SSÍ Íslenska sundkonan Snæfríður Sól Jórunnardóttir hefur átt mjög gott ár og það sýnir sig á nýjum heimslista Alþjóða sundsambandsins.
Snæfríður Sól er nú í byrjun október á meðal þeirra bestu í Evrópu í sinni bestu grein. Snæfríður er eins og er í tíunda sæti á Evrópulistanum í 200 metra skriðsundi, sem er virkilega góður og athyglisverður árangur. Síðasta sundár var eins og áður sagði mjög glæsilegt hjá Snæfríði en hún setti þá ellefu Íslandsmet í 50 metra laug og sex Íslandsmet í 25 metra laug. Snæfríður synti einnig undir FINA-A lágmarki á HM50 í 200 metra skriðsundi og endaði í fjórtánda sæti í greininni. Miðað við stöðuna eins og hún er í dag þá verður Snæfríður fulltrúi Íslands á næstu Ólympíuleikum sem fram fara í París á næsta ári. Snæfríður Sól stundar æfingar og nám í Álaborg en næsta stórmót hjá henni er EM í 25 metra laug í Búkarest í desember. Um næstu helgi mun hún síðan taka þátt í World Cup mótaröðinni í Berlín ásamt fimm öðrum sundmönnum frá Sundsambandi Íslands. Ísland á fleiri sundmenn ofarlega á heimslistanum. Anton Sveinn McKee var í september á meðal þeirra bestu heiminum. Anton Sveinn er sem stendur í fjórða sæti á Evrópulistanum í 200 metra bringusundi og í fjórtánda sæti á heimslistanum í sömu grein. Anton Sveinn stundar æfingar í Virgina fylki í Bandaríkjunum en næsta stórmót sem hann tekur þátt í er líka EM í 25 metra laug í Búkarest í desember. Anton Sveinn er eini íþróttamaðurinn á Íslandi sem hefur tryggt sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í París á næsta ári.
Sund Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira