Ísafjarðarbær flýtir framkvæmdum og gervigrasvellirnir verða klárir fyrir Bestu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2023 09:31 Vestramenn voru frábærir í úrslitakeppninni. Vísir/Diego Vestri tryggði sér sæti í Bestu deild karla í fótbolta um síðustu helgi með því að vinna Aftureldingu í úrslitaleik umspils Lengjudeildar karla.
Þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 1983 sem Vestfirðingar eiga lið í efstu deild fótboltans og mikill áfangi fyrir starfið hjá Vestra. Í 520. fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í gær var samþykkt að flýta framkvæmdum við velli Vestra. Það á að setja gervigras á bæði aðal- og æfingavöll félagsins. Bæjarstjórn lagði til á nýjasta fundi sínum að það yrði tilfærsla á framkvæmdum ársins 2023. Þetta varðar verkefnin gervigras á Torfnesi en einnig innanhúslýsingu íþróttahússins á Torfnesi, ofanflóðavarnir á Flateyri, framkvæmdir við gamla gæsló og hreystitækjagarð á Ísafirði, og breytingar á endurnýjum vatnslagna í Staðardal og hreinsimannvirkja fráveitu á Flateyri og Suðureyri. Þetta var samþykkt sem þýðir að báðir gervigrasvellirnir eiga að verða tilbúnir fyrir þátttöku Vestra í Bestu deild karla 2024. Búast má við að Besta deildin hefjist strax í byrjun apríl á næsta ári og það eru því ekki margir mánuðir til stefnu. Hér fyrir neðan má hlusta á umræður um gervigrasvellina á fundi bæjarstjórnar.
Vestri Ísafjarðarbær Besta deild karla Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Sjá meira