Barcelona fór illa með erkifjendurna Smári Jökull Jónsson skrifar 19. nóvember 2023 12:59 Aitana Bonmati og Caroline Graham Hansen fagna marki í leiknum í dag. Vísir/Getty Barcelona vann öruggan 5-0 sigur á Real Madrid þegar liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Barcelona hefur unnið spænsku deildina síðustu fjögur tímabilin en Real Madrid hafnaði í öðru sæti deildarinnar í fyrra. Fyrir leikinn í dag hafði Barcelona unnið sigur í öllum níu leikjum sínum í deildinni til þessa en Real Madrid tapað einum. Það var engin spurning í leiknum í dag hvort liðið væri sterkara. Aitana Bonmati kom Barcelona yfir strax á 17. mínútu en hún var valin best á heimsmeistaramótinu í Ástralíu og Nýja-Sjálandi í sumar. Almost a wonder goal from CGH https://t.co/2u383n0aXi#LigaF pic.twitter.com/VcVPCiKV20— DAZN Football (@DAZNFootball) November 19, 2023 Barcelona lét ekki þar við sitja heldur bætti tveimur mörkum við fyrir lok fyrri hálfleiks. Caroline Graham Hansen skoraði á 43. mínútu og í uppbótartíma var komið að Mariona Caldentey. Síðari hálfleikur var fremur rólegur lengst af og það var ekki fyrr en í uppbótartíma sem Barcelona rak smiðshöggið. Fyrst skoraði Claudia Pina og Vicky Lopez bætti fimmta markinu við undir lokin. WHAT A GOAL! Bonmati Pina https://t.co/2u383n0aXi#LigaF pic.twitter.com/RfGSUD1qdp— DAZN Football (@DAZNFootball) November 19, 2023 5-0 sigur staðreynd og afar fátt sem bendir til annars en að Barcelona verði með yfirburði á Spáni í vetur.
Spænski boltinn Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Leik lokið: Álftanes - Höttur 111-77 | Nýtt upphaf í forsetahöllinni Körfubolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Fleiri fréttir Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Sjá meira