Kristín Tómas selur ævintýralega íbúð Íris Hauksdóttir skrifar 23. nóvember 2023 16:34 Kristín Tómasdóttir og fjölskylda hafa sett eign sína á sölu. Kristín Tómasdóttir, metsöluhöfundur og fjölskyldumeðferðarfræðingur hefur sett eign sína við Mávahlíð á sölu. Ásett verð fyrir fermetrana 101 eru 77,9 milljónir.
Um er að ræða fallega og vel skipulagða hæð í litlu fjölbýli. Eignin er björt og rúmgóð og telur anddyri, hol, borð- og setustofu, þrjú svefnherbergi, eldhús og baðherbergi auk rislofts sem nýtt hefur verið sem fjórða svefnherbergi eignarinnar. Virkilega falleg eign með mikla möguleika á vinsælum stað í Reykjavík þar sem stutt er í alla þjónustu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um húsið á fasteignavef Vísis en hér að neðan eru nokkrar vel valdar myndir. Borð- og setustofa í opnu rými, parket á gólfi, stórir gluggar til suðurs og frá borðstofu er útgengt á skjólríkar suður svalir eignar. Hol er rúmgott og bjart, stigi upp á risloft, ágætur laus fataskápur og annar innbyggður. Á gólfi er parket. Forstofa með innbyggða skápa, parket á gólfi og þakgluggi sem gefur birtu inn í rýmið. Inngangur er sameiginlegur með íbúð á 2. hæð og gengið upp í séreign um nýlega teppalagðan bogadreginn stiga. Eldhús rúmgott og bjart góðri vinnuaðstöðu. Eldhúsið er með miklu skápaplássi, gluggum á tvo vegu og ágætum borðkrók. Á gólfi er korkur. Svefnherbergi með lausum fataskáp í herbergi, gluggi til vesturs með opnanlegu fagi. Rúmgott og bjart með gluggum á tvo vegu, nýlegum fataskápum og frá herbergi er útgengt á svalir eignar. Baðherbergi hefur nýlega verið endurnýjað að hluta, vegghengt WC, falleg innrétting og baðkar með sturtuhaus. Á gólfi og á veggjum eru flísar og á baðherbergi er gluggi með opnanlegu fagi. Risloft liggur yfir stórum hluta íbúðar og er í dag nýtt sem fjórða herbergi eignar. Þar er teppi á gólfi, tveir opnanlegir þakgluggar og inn af herbergi er geymsla. Skjólgóðar suður svalir með miklu útsýni. Mávahlíð 46 er fallegt lítið fjölbýli í Hlíðunum í Reykjavík.
Fasteignamarkaður Hús og heimili Reykjavík Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Tímamót hjá Árna Má Menning Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira