Ríkisstjórn Ísrael hafði skipað lögreglu að halda aftur af fagnaðarlátunum og beittu lögregluþjónar minnst einu sini táragasi gegn þvögunni.
Fólkinu var sleppt fyrir utan Jerúsalem en mörg þeirra höfðu setið í fangelsi fyrir litlar sakir, eða jafnvel engar.
Blaðamaður AP fréttaveitunnar reyndi að ræða við hinn sautján ára gamla Jamal Brahma en hann var orðlaus. Hann hafði verið í haldi í sjö mánuði eftir að hafa verið handtekinn í Jericho á Vesturbakkanum í vor. Hann hefur þó hvorki verið ákærður né gengist réttarhöld.
Fólkinu var sleppt á sama tíma og 24 gíslum var sleppt frá Gasaströndinni.
Til stendur að halda frekari skipti seinnipartinn í dag.
Sjá einnig: Búið að sleppa tuttugu og fjórum gíslum
Eins og fram kemur í frétt Al Jazeera hafa Ísraelar samþykkt að sleppa 150 konum og börnum úr fangelsum sínum í skiptum fyrir að Hamas-liðar sleppi fimmtíu konum og börnum sem þeir handsömuðu þann 7. október. Yfirvöld í Ísrael hafa þó birt lista yfir þrjú hundruð palestínska fanga sem verið er að íhuga að sleppa úr haldi.
Mögulegt þykir að með þessu vilji Ísraelar lýsa yfir vilja til frekari fangaskipta, þar sem vopnahléssamkomulagið felur í sér að hægt yrði að halda því áfram efir fjóra daga, í skiptum fyrir það að Hamas sleppi tíu manns á dag.
Þúsundir í haldi og margir án ákæru
Af þessum þrjú hundruð eru 33 konur. Aðrir eru drengir, milli sextán og átján ára gamlir, en þar eru einnig allt að fjórtán ára ungir drengir. Flest börnin voru handtekinn á árunum 2021 til þessa árs.
Al Jazeera segir marga á listanum hafa verið dæmda og fangelsaða fyrir að búa til eggvopn, ógna öryggi, fara inn í Ísrael án leyfis, kasta grjóti, styðja hryðjuverk eða fyrir að tengjast óvinveittum samtökum.
Miðillinn segir að fyrir 7. október hafi um 5.200 Palestínumenn verið í haldi Ísraela en síðan þá hafi um þrjú þúsund verið handteknir til viðbótar.
AP hefur eftir hjálparsamtökum að um 2.200 Palestínumenn séu í haldi án ákæru. Talið er að rúmlega 750 þúsund Palestínumenn hafi farið í gegnum fangelsiskerfi Ísrael frá 1967.