Liðsfélagi Orra Steins einn heitasti bitinn á evrópska markaðnum Smári Jökull Jónsson skrifar 29. nóvember 2023 23:01 Roony Bardghji fagnar hér marki sínu gegn Manchester Untied á dögunum. Vísir/Getty Liðsfélagi Orra Steins Óskarssonar hjá FCK í Danmörku er eftirsóttur af mörgum stórliðum í Evrópu og gæti yfirgefið félagið strax í janúar.
Sænska ungstirnið Roony Bardghji er fæddur árið 2005 og þar af leiðandi aðeins 18 ára gamall. Hann er liðsfélagi Orra Steins Óskarssonar hjá FCK og skoraði eitt marka liðsins í sigrinum á Manchester United í Meistaradeildinni á dögunum. Á leik liðsins gegn Bayern Munchen í kvöld voru fulltrúar fjölmargra evrópskra stórliða mættir á Allianz Arena til að fylgjast með Bardghji sem var í byrjunarliði danska liðsins. Ítalska stórliðið Juventus er með hann ofarlega á sínum óskalista og þeir Cristiano Giuntoli og Giovanni Manna sem eru yfirmenn íþróttamála hjá félaginu hafa fylgst vel með Bardghji síðustu mánuði. Þá er Inter sömuleiðis með sænska sóknarmanninn undir smásjánni sem og þá fylgjast forráðamenn Chelsea, Feyenoord, Dortmund, Liverpool Ajax, Barcelona og Bayern Munchen sömuleiðis með gangi mála. Bardghji á enn eftir að leika A-landsleik fyrir Svíþjóð en sögusagnir fóru af stað í sumar um að hann myndi mögulega velja danska landsliðið fram yfir það sænska. Bardghji sjálfur kvað þessar fréttir þó í kútinn og sagðist munu velja Svíþjóð.
Danski boltinn Mest lesið Mögulega leikþáttur hjá Egyptum Handbolti Tók brjálæðiskast í klefanum hjá Man. Utd Enski boltinn Hefur ekki mikla trú á CrossFit goðsögnunum frá Íslandi Sport HM í dag: Meiðsli í miðjum þætti og heyrnartólin lentu upp í sveit Handbolti Svona var Pallborðið: Handboltaæði runnið á þjóðina Handbolti „Ég spurði mömmu nú ekki hvað fór þeim á milli“ Handbolti „Ég er ekkert viss um að við náum aftur þessari geðveiki“ Handbolti Segir bronsverðlaun sín vera að breytast í gull Sport „Það er einhver ára yfir liðinu“ Handbolti Þjóðverjar í sárum eftir „Herning helvítið“ Handbolti Fleiri fréttir „Held ég hafi þurft á því að halda“ Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Mannvirkjasjóður KSÍ fer næstu árin í uppbyggingu á Laugardalsvelli Sjáðu markaveislu Barcelona, Hákon búa til mark á Anfield og öll hin mörkin í gær Dortmund rak þjálfarann sinn eftir tapið í gær Slagsmál í leikmannagöngunum eftir sigur Barcelona í gær Táningur handtekinn vegna ummæla í garð Havertz og eiginkonu hans Tók brjálæðiskast í klefanum hjá Man. Utd Chelsea að gera Naomi Girma að dýrasta leikmanni sögunnar Magnaður endurkomusigur Atlético Madríd Jón Daði skoraði í fyrsta sigurleik Burton á árinu Monaco með mikilvægan sigur á Aston Villa Ótrúleg endurkoma Börsunga Torsóttur sigur toppliðsins Grealish eftirsóttur: Færir hann sig um set í Manchester? KSÍ boðar unga varnarmenn á séræfingar Hefur skoðanir á því hvar Arnar eigi að hefjast handa með landsliðið Víkingur spilar heimaleik sinn í Helsinki Telma mætt til skosks stórveldis Meistarar City halda áfram að bæta við sig „Of snemmt að kalla Liverpool besta lið í heimi“ Spilar ekki á meðan glugginn er opinn Petit baðst afsökunar á að „drepa“ Pat Rice „Ég myndi deyja fyrir Liverpool“ Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Óvænt rekinn með símtali rétt áður en Elísabet tók við Forseta FIFA boðið á innsetningu Donald Trump Solskjær: Lét mig vinna launalaust Þróttur fær aðra úr Árbænum Englandsmeistararnir festa kaup á Khusanov Sjá meira