Innlent

Slökkvi­liðið minnir á reykskynjarann í að­draganda jóla

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Samkvæmt skoðanakönnun Maskínu eru 95,7 prósent heimila með einn reykskynjara eða fleiri en Guðjón segir hlutfallið eiga að vera 100 prósent.
Samkvæmt skoðanakönnun Maskínu eru 95,7 prósent heimila með einn reykskynjara eða fleiri en Guðjón segir hlutfallið eiga að vera 100 prósent. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu minnir á reykskynjarann nú í aðdraganda jóla en 1. desember er formlegur dagur öryggistækisins. Eru allir landsmenn hvattir til að huga að brunavörnum heimilisins.

„Reykskynjarinn vakir yfir þér og þínu fólki. Eldurinn læðist um og lætur ekki vita af sér en það er skerandi hljóð reykskynjarans sem vekur fólk ef eldur kemur upp á heimilinu,“ er haft eftir Guðjóni Guðjónssyni, aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í tilkynningu.

Guðjón segir mikilvægt að það séu reykskynjarar í öllum rýmum heimilisins og að þeir séu settir sem næst miðju lofts. Þá eigi að prófa virkni þeirra einu sinni á ári. Einnig sé mikilvægt að þekkja flóttaleiðir og að slökkvitæki séu tiltækt á flóttaleiðum.

Á aðventunni sé notalegt að eiga góða stund með fjölskyldu og vinum við kertaljós.

„Það þarf að fara gætilega með eld og rafmagn. Gott að er hafa óbrennanlegt undirlag undir kertum og staðsetja þau ekki nálægt gardínum. Þá er snjallt að að vökva jólatrén, séu þau lifandi grenitré, því þau eru eldfimari ef þau þorna upp. 

Raftæki og aðrir hitagjafar, svo sem kertaljós, arineldur og jólaseríur, eru ómissandi partur af lífi okkar flestra en geta þó snögglega snúist upp í andhverfu sína ef umgengnin er ekki örugg. 

Við mælum eindregið með því að hlaða rafmagnshjól og rafmagnstæki af ábyrgð, ekki hlaða á meðan allir eru sofandi eða þegar enginn heima. Þá er betra að hafa svefnherbergisdyr lokaðar því eldur breiðist mjög hratt út,“ segir Guðjón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×