Lífið

Myndaveisla: Grind­víkingar áttu hjart­næma stund saman

Elísabet Inga Sigurðardóttir og Jón Þór Stefánsson skrifa
Grindvíkingar virtust flestir á sama máli um að viðburðurinn væri mikilvægur fyrir börnin.
Grindvíkingar virtust flestir á sama máli um að viðburðurinn væri mikilvægur fyrir börnin. Vísir/Vilhelm

Börn frá Grindavík brostu úr að eyrum á aðventugleði sem fram fór í dag þegar íbúar komu margir saman í fyrsta sinn frá því að bærinn var rýmdur.

Grindvíkingar eru margir hverjir byrjaðir að undirbúa jól annars staðar en heima hjá sér, enda eiga þeir ekki von á því að snúa heim fyrr en á nýju ári.

Íbúar Grindavíkurbæjar hafa árum saman kveikt á jólatré við hátíðlega athöfn, tekið á móti jólasveinum og börn dansað í kringum jólatré. Engin undantekning var á því þetta árið, en staðsetningin var þó önnur en fyrri ár.

Grétar Örvarsson úr Stjórninni átti frumkvæði að því að koma hópnum saman í íþróttahúsi í Hafnarfirði. Húsfyllir var í salnum og þeir sem fréttastofa ræddi við voru á sama máli um að þarna væri þýðingamikil stund að eiga sér stað. Það væri gott að hitta félaga úr bænum.

„Hérna leggja allir fram vinnu sína, hvort sem það eru skemmtikraftar eða aðrir. En fyrst og fremst er þetta bara mikilvæg samverustund fyrir okkur,“ sagði Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar.

Vísir/Vilhelm

„Það er mjög skemmtilegt að sjá hvað það er fjölmennt hérna. Það eru margir hérna sem ég er að sjá í fyrsta skipti síðan þetta skeði,“ sagði Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur.

Svo virðist sem fólki hafi fundist stundin sérstaklega mikilvæg fyrir grindvísk börn. „Þetta hefur mikla þýðingu, sérstaklega fyrir börnin að hitta önnur börn,“ sagði Sigrún Sverrisdóttir, íbúi í Grindavík. „Þau er ótrúlega brött. Þau eru ótrúlega dugleg að venjast nýjum aðstæðum.“

Vísir/Vilhelm

Svo virðist sem Grindvíkingar geri sér almennt litlar vonir um að komast heim til sín fyrir jól. Börnin eru þó helsta undantekningin á því og halda enn í vonina.

Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Aðventufagnaður Grindvíkinga á Ásvöllum
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.