Óhjákvæmileg vináttuslit vinstrisinna og íslamista Finnur Th. Eiríksson skrifar 15. desember 2023 13:00 Þegar umdeild málefni eru rædd er vissara að hafa hugtakanotkun á hreinu. Mig langar því að undirstrika að hugtökin íslam og íslamismi eru ekki samheiti. Íslam er trú en íslamismi er pólitísk hugmyndafræði. Það er ekki ætlun mín að alhæfa um múslima sem trúarhóp. Þeir eru jafn ólíkir og þeir eru margir. Þessi grein felur hins vegar í sér afgerandi fullyrðingar um íslamisma, sem byggir á skýrt afmarkaðri hugmyndafræði. Samkvæmt íslamisma eiga lög og reglur samfélagsins að byggja á trúarlegum lagabálki sem kallast sjaríalög. Þar sem íslamistar ráða ríkjum er þar af leiðandi enginn aðskilnaður ríkis og trúar. Að því sögðu, langar mig að beina athyglinni að einhverjum furðulegustu pólitísku vináttuböndum allra tíma – vináttuböndum vinstrisinna og íslamista. Um árabil átti Jeremy Corbyn, fyrrum leiðtogi breska verkamannaflokksins, náin tengsl við yfirvöld í Íran, Hamassamtökin í Palestínu og Bræðralag múslima. Þrátt fyrir að Corbyn hafi haldið sig nokkuð til hlés undanfarið, hefur fylgispekt skoðanabræðra hans við íslamista sjaldan verið jafn áberandi. Fyrir nokkru var gamalt bréf hryðjuverkamannsins Osama bin Laden vakið aftur til lífsins af róttækum ungmennum á TikTok. Þessi sömu ungmenni virðast einnig vera hliðholl Hamassamtökunum í Palestínu, þrátt fyrir að liðsmenn Hamas hafi myrt, rænt og nauðgað fjölda fólks fyrir aðeins tveimur mánuðum síðan. Sum íslamistasamtök, sérstaklega Bræðralag múslima, hafa markvisst villt á sér heimildir til að höfða til vinstrisinnaðra ungmenna. Ímyndarherferð þeirra hefur byggt á að leggja áherslu á málefni sem báðir hópar styðja. Lykillinn að samvinnunni hefur því verið sameiginlegt hatur þeirra á Bandaríkjunum, NATO og svokallaðri „vestrænni heimsvaldastefnu“. En það baráttumál mun einungis tímabundið geta dregið dulu yfir ágreininginn sem mun óhjákvæmilega koma upp á milli þeirra. Fyrir utan þetta eina sameiginlega baráttumál, er vart hægt að ímynda sér ósamstæðari hugmyndafræði. Trúfrelsi og tjáningarfrelsi Í hugum flestra Vesturlandabúa er trúfrelsið einn af mikilvægustu hornsteinum samfélagsins. Trúfrelsið er sérstaklega í hávegum haft meðal vinstrisinna sem margir hverjir eru trúlausir. Á hinn bóginn eru íslamistar algjörlega andvígir trúfrelsi. Líkt og áður kom fram byggir hugmyndafræði þeirra á skilyrðislausum samruna íslams og ríkisvaldsins. Í samfélögum grundvölluðum á íslamisma eru þeir sem ekki eru múslimar ýmist settir skör lægra eða hreinlega drepnir. Þeir sem yfirgefa íslam eða gerast sekir um Guðlast eru taldir réttdræpir. Skáldsaga Salman Rushdie, Söngvar Satans (e. The Satanic Verses), var gefin út árið 1988. Sagan vakti svo mikla reiði að klerkastjórnin í Íran fyrirskipaði dauða höfundarins og lagði þrjár milljónir Bandaríkjadollara honum til höfuðs. Næstu áratugi fór Rushdie huldu höfði. Smám saman slakaði hann þó á öryggisráðstöfunum sínum og hóf að koma fram á opinberum vettvangi á ný. Í ágúst 2022 stóð til að hann myndi flytja ræðu á ráðstefnu í New York. Hann var í þann mund að hefja ræðu sína þegar róttækur íslamisti, Hadi Matar, hljóp upp á sviðið og stakk hann tíu sinnum. Til allrar hamingju lifði Rushdie árásina af. Hann var þó blindaður á hægra auga og lá lengi á sjúkrahúsi. Jafnrétti kynjanna og réttindi samkynhneigðra Kvennafrídagurinn var haldinn með mikilli viðhöfn í Reykjavík síðastliðinn október. Yfir hundrað þúsund manns söfnuðust saman í miðbæ Reykjavíkur til að minnast áfangasigra kvenréttindabaráttunnar. Er barátta vestrænna femínista fyrir réttindum kvenna í öðrum heimshlutum jafn hávær? Svo virðist ekki vera. Íslamistar aðhyllast ekki vestrænar hugmyndir um jafnrétti kynjanna. Hægt er að taka fjölmörg dæmi sem undirstrika það. Samkvæmt sjaríalögum þykir vitnisburður konu í réttarsal ekki jafnmarktækur og vitnisburður karlmanns. Konur eiga ekki sama erfðarétt og karlmenn og þær eru látnar klæðast fötum sem hylja þær nánast frá toppi til táar. Konur sem taldar eru hafa brotið þessi lög sæta hörðum refsingum. Það vakti heimsathygli þegar Masha Amini var handtekin og myrt af írönsku „siðgæðislögreglunni“ fyrir rúmu ári síðan. Það hefur hins vegar lítið borið á mótmælum femínista gegn illri meðferð íranskra yfirvalda á konum. Hér er um að ræða hræsnisfullan tvöfaldan staðal. Eiga íranskar konur síður skilið þau mannréttindi sem vestrænir femínistar telja sjálfsögð? Að sama skapi viðurkenna íslamistar ekki mannréttindi samkynhneigðra. Í Íran eru samkynhneigðir teknir af lífi. Undir Hamassamtökunum á Gaza er samkynhneigð einnig dauðasök (þótt orðalagið „siðferðisleg hnignun“ sé notað þegar dómar yfir samkynhneigðum eru kveðnir upp). Það væru ekki skemmtileg örlög sem biðu samkynhneigðra stuðningsmanna íslamista ef þeir myndu opinbera kynhneigð sína á yfirráðasvæðum þeirra. Loftslagsbreytingar Krafan um loftslagsaðgerðir er ofarlega á baugi um þessar mundir. Í vikunni náðist einmitt samkomulag á COP28 ráðstefnunni um að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Væntanlega gera Jeremy Corbyn og skoðanabræður hans sér vonir um að vinir þeirra, íslamistarnir, deili eldmóði þeirra fyrir loftslagsaðgerðum. En þeir munu verða fyrir djúpstæðum vonbrigðum. Hvers vegna? Það vill svo til að ein helsta tekjulind íslamista víða um heim er olía. Ef olía er lifibrauð þitt er ólíklegt að þú munir nokkurn tímann taka undir kröfuna um að skipta yfir í endurnýjanlega orkugjafa. Auk þess er trúarkenningin um Dómsdag stór hluti af heimssýn íslamista. Samkvæmt þeirri kenningu mun sjálf Jörðin verða kramin og endurunnin þegar Dómsdagur rennur upp. Flestir íslamistar telja að sá dagur sé rétt handan við hornið. Af þeim sökum hafa þeir ekki miklar áhyggjur af loftslagsbreytingum. Hvers vegna ættu þeir að hafa slíkar áhyggjur þegar þeir trúa því að Jörðin sé hvort eð er dæmd til eyðileggingar? Lokaorð Vinstrisinnar og íslamistar eru ekki ósammála um neina smámuni. Þeir eru ósammála um grundvallaratriði. Vinátta þeirra mun einungis ganga upp á meðan þeir geta farið líkt og kettir í kring um heitan graut um þá hugmyndafræðilegu gjá sem aðskilur þá. Á einhverjum tímapunkti mun mælirinn fyllast. Þá mun baráttan gegn „vestrænni heimsvaldastefnu“ ekki nægja sem friðþæging fyrir þann eðlismun sem er á heimsmynd þeirra. Það er því einungis tímaspursmál hvenær óhjákvæmileg vináttuslit vinstrisinna og íslamista verða að veruleika. Höfundur er samfélagsrýnir. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Finnur Thorlacius Eiríksson Mest lesið „Forðastu múslímana,“ sögðu öfgahægrimenn mér Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Gott knatthús veldur deilum Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins Jón Frímann Jónsson Skoðun Gagnaver auka hagkvæmni í fjarskiptum Íslands við umheiminn Þorvarður Sveinsson Skoðun Skammtatölvur: Framtíð tölvunarfræði og bylting í útreikningum Sigvaldi Einarsson Skoðun 2027 væri hálfkák Ole Anton Bieltvedt Skoðun Raforkunotkun gagnavera minnkað mikið Tinna Traustadóttir Skoðun Hamingjan sem leiðarljós menntakerfisins Reynir Böðvarsson Skoðun Hugum að loftgæðum, heilsu og sjálfbærni um jólin – eigum loftgæða jól! Heiða Mjöll Stefánsdóttir,Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir Skoðun Göngum fyrir friði Guttormur Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hugum að loftgæðum, heilsu og sjálfbærni um jólin – eigum loftgæða jól! Heiða Mjöll Stefánsdóttir,Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Raforkunotkun gagnavera minnkað mikið Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Gott knatthús veldur deilum Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Göngum fyrir friði Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Skammtatölvur: Framtíð tölvunarfræði og bylting í útreikningum Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hamingjan sem leiðarljós menntakerfisins Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Gagnaver auka hagkvæmni í fjarskiptum Íslands við umheiminn Þorvarður Sveinsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun „Forðastu múslímana,“ sögðu öfgahægrimenn mér Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun 2027 væri hálfkák Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Hvað eru jólin fyrir þér? Hugrún Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Landið helga? Ingólfur Steinsson skrifar Skoðun Að sinna orkuþörf almennings Kristín Linda Árnadóttir skrifar Skoðun Tímamót Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Menntun fyrir Hans Vögg Þuríður Magnúsína Björnsdóttir skrifar Skoðun Þegar Samtök verslunar og þjónustu vita betur Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Dans verkalýðsleiðtoga í kringum gullkálfinn Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Jól í sól versus jóla í dimmu Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi samgöngusáttmála fyrir Vestfirði Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir,Unnar Hermannsson,Halldór Halldórsson skrifar Skoðun Opið bréf til valkyrjanna þriggja Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Kæri Grímur Grímsson – sakamaður gengur laus? Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er janúar leiðinlegasti mánuður ársins? Dagbjört Harðardóttir skrifar Skoðun Svar við hótunum Eflingar Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Er aukin fræðsla um kólesteról og mettaða fitu virkilega upplýsingaóreiða? Sigurður Örn Ragnarsson skrifar Skoðun Manni verður kalt ef maður pissar í skóinn sinn Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Skautun eða tvíhyggja? Þóra Pétursdóttir skrifar Skoðun Egóið er í hégómanum Skúli S. Ólafsson skrifar Skoðun Dæmalaus málflutningur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Grýtt eða greið leið? Þröstur Sæmundsson skrifar Skoðun Tímalína hörmulegra limlestinga og kvalafulls dauðastríðs háþróaðrar lífveru Ole Anton Bieltvedt skrifar Sjá meira
Hugum að loftgæðum, heilsu og sjálfbærni um jólin – eigum loftgæða jól! Heiða Mjöll Stefánsdóttir,Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Hugum að loftgæðum, heilsu og sjálfbærni um jólin – eigum loftgæða jól! Heiða Mjöll Stefánsdóttir,Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Mikilvægi samgöngusáttmála fyrir Vestfirði Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir,Unnar Hermannsson,Halldór Halldórsson skrifar
Skoðun Er aukin fræðsla um kólesteról og mettaða fitu virkilega upplýsingaóreiða? Sigurður Örn Ragnarsson skrifar
Skoðun Tímalína hörmulegra limlestinga og kvalafulls dauðastríðs háþróaðrar lífveru Ole Anton Bieltvedt skrifar
Hugum að loftgæðum, heilsu og sjálfbærni um jólin – eigum loftgæða jól! Heiða Mjöll Stefánsdóttir,Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir Skoðun