Lífið

Home Alone fjöl­skyldan til­heyrir eina prósentinu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Kevin McCallister og félagar væru í hópi hinna ofurríku, væru þau raunverulega til.
Kevin McCallister og félagar væru í hópi hinna ofurríku, væru þau raunverulega til. 20th century Fox

McCallister fjölskyldan úr Home Alone jólamyndunum væri í hópi hinna ofurríku ef hún væri raunveruleg, miðað við eignir fjölskyldunnar og hús hennar í Chicago borg í Bandaríkjunum.

Þetta er mat þriggja hagfræðinga auk kvikmyndagerðarfólks sem New York Times fékk til liðs við sig til þess að greina auðævi fjölskyldunnar og máta við forsendur veruleikans.

Sérfræðingarnir líta meðal annars til þess hverjar eru meðaltekjur fjölskyldna í Chicago árið 1990 annars vegar og í dag hins vegar, á húsnæðisverð, lánaumhverfið á sitthvorum tíma og til skatta og gjalda.

Þeir gefa sér að Kevin og félagar í MCCallister fjölskyldunni hafi ekki eytt meiru en þrjátíu prósent ráðstöfunartekna í húsnæði.

Með þær forsendur segja sérfræðingarnir að fjölskylda þurfi tekjur sem nema 305 þúsund bandaríkjadollurum árið 1990 en 665 þúsund dollara í dag eða því sem nemur rúmum 42 milljónum króna árið 1990 og 91 milljón króna í dag.

Þá komast þeir að þeirri niðurstöðu að hús þeirra myndi kosta um 2,4 milljónir Bandaríkjadollara í dag, eða því sem nemur rúmum 330 milljón íslenskum krónum.

Fram kemur í umfjöllun New York Times að það hafi aldrei komið fram í myndinni við hvað foreldrar litla Kevins hafi starfað. Rætt er við Todd Strasser sem skrifaði samnefndar bækur eftir handriti myndanna. Hann segir að hann hafi fengið að ráða því.

Hann hafi ákveðið að Kate McCallister hafi verið tískuhönnuður, þar sem þó nokkrar gínur hafi sést í húsi fjölskyldunnar í myndinni, sem Kevin notaði meðal annars til að blekkja innbrotsþjófana. Þá hafi hann gert pabba Kevin að kaupsýslumanni. Hann segir að sér hafi fundist það öruggast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.