Natasha kom inn af bekknum í magnaðri endurkomu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 21. desember 2023 20:55 Leikmenn Brann gátu leyft sér að brosa í leikslok. Alex Pantling - UEFA/UEFA via Getty Images Natashi Anasi og stöllur hennar í norska liðinu Brann nældu í stig er liðið tók á móti Lyon í B-riðli Meistaradeildar Evrópu kvenna í kvöld. Lokatölur 2-2 í leik þar sem frönsku gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins.
Amel Majri kom Lyon yfir strax á sjöttu mínútu áður en Ada Hegerberg tvöfaldaði forystu liðsins sjö mínútum síðar með marki úr vítaspyrnu. Heimakonur lögðu þó ekki árar í bát. Justine Kielland minnkaði muninn á 34. mínútu og staðan var því 1-2 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Gestirnir komu sér svo í vandræði þegar Lindsey Horan nældi sér í beint rautt spjald snemma í síðari hálfleik og liðsmenn Lyon þurftu því að spila manni færri seinustu 40 mínútur leiksins. Natasha kom inn af bekknum fyrir Brann þegar rúmur hálftími var til leiksloka, en Brann náði ekki að nýta sér liðsmuninn fyrr en á fjórðu mínútu uppbótartíma þegar Signe Gaupset kom boltanum í netið og niðurstaðan varð 2-2 jafntefli. Lyon trónir þó enn á toppi B-riðils, nú með tíu stig eftir fjóra leiki, þremur stigum meira en Brann sem situr í öðru sæti.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Sameinast litla bróður hjá Kolstad Handbolti Fleiri fréttir Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Sjá meira