Giuliani var nýverið dæmdir til að greiða mæðgunum Ruby Freeman og Wandreu Moss 148 milljónir dala, eða ríflega tuttugu milljarða króna, vegna lyga um að þær hafi staðið að kosningasvindli í Georgíu, þar sem þær störfuðu fyrir kjörstjórn.
Sjá einnig: Greiði mæðgunum ríflega tuttugu milljarða
Dómarinn sem úrskurðaði í meiðyrðamálinu gegn Giuliani skipaði honum fyrr í vikunni að hefja greiðslur til þeirra strax, af ótta við að Giuliani reyndi að fela eigur sínar. Gjaldþrot mun ekki koma í veg fyrir að hann greiði mæðgunum heldur mun hann þurfa að greiða þeim hluta af tekjum sínum.
Samkvæmt frétt New York Times skuldar Giuliani lögmönnum sínum einnig milljónir dala og um milljón dala í skatta. Þá hefur miðillinn eftir pólitískum ráðgjafa Giuliani að gjaldþrotaskiptaumsóknin ætti ekki að koma neinum á óvart. Enginn gæti trúað því að hann gæti greitt mæðgunum þá upphæð sem honum var gert að greiða þeim.
Freeman og dóttir hennar störfuðum í kosningunum í Atlanta í Georgíu árið 2020 og urðu strax á kosningakvöld skotspónn hægri sinnaðra öfgamanna, vegna lyga Trumps og bandamanna hans um að umfangsmikið kosningasvindl hefði kostað hann sigur.
Þær urðu meðal annars fyrir morðhótunum og ókunnugir menn sögðust ætla að „handtaka þær“. Kona sem starfaði fyrir Kanye West þrýsti þar að auki á þær um að játa kosningasvindl og gaf þeim tvo sólarhringa. Annars yrðu þær handteknar.
Þær höfðuðu aftur mál gegn honum á mánudaginn, þar sem hann hélt áfram að ljúga um þær eftir að hann var dæmdur til að greiða þeim tuttugu milljarða króna vegna sömu lyganna.
Stendur frammi fyrir fjölda lögsókna
Giuliani leiddi um tíma viðleitni Trumps við að snúa úrslitum forsetakosninganna og stendur hann frammi fyrir margskonar lögsóknum vegna þeirra starfa. Auk lögsóknar Ruby Freeman og Wandreu Moss hefur fyrirtækið Dominion Voting Systems höfðað mál gegn Giuliani og hann hefur þar að auki verið ákærður í Georgíu, svo eitthvað sé nefnt.
Forsvarsmenn Fox News gerðu fyrr á árinu samkomulag um að greiða Dominion 787 milljónir bandaríkjadala í skaðabætur, sem nemur um 107 milljörðum íslenskra króna. Forsvarsmenn Fox þurftu einnig að viðurkenna að lygar hefðu verið sagðar á miðlinum um Dominion.
Sjá einnig: Fox greiðir Dominion 107 milljarða vegna lyga um kosningasvindl
Giuliani stendur einnig frammi fyrir lögsóknum frá Hunter Biden, syni Joe Biden, forseta, og frá Smartmatic. Það er annað fyrirtæki sem kemur að kosningavélum og rataði í samsæriskenningar Trumps og bandamanna hans um kosningarnar 2020.
Skatturinn frysti í október eign Giuliani í Flórída, vegna skulda hans og hann er einnig að reyna að selja íbúð sína í New York á 6,1 milljón dala.
NYT segir að eftir að hann hætti sem borgarstjóri og fór að starfa sem lögmaður, þénaði Giuliani milljónir dala á ári. Skilnaður hans við þriðju eiginkonu hans, árið 2019, varpaði þó ljósi á mjög kostnaðarsaman lífstíl þeirra, þar sem þau eyddu um 230 þúsund dölum á mánuði (um 31,5 milljónir króna), áttu sex hús og voru meðlimir í ellefu sveitarklúbbum.
Þegar hann hætti hjá lögmannafyrirtæki sínu og fór að vinna fyrir Trump, í maí 2018, átti Giuliani um 1,2 milljónir dala og skuldaði 40 þúsund dali vegna kreditkortanotkunar. Í skjölum vegna nýlegs dómsmáls kom fram að í byrjun árs 2019 átti hann fjögur hundruð þúsund dali og skuldaði 110 þúsund dali vegna kreditkortanotkunar.