Lífið

Parasite-leikarinn Lee Sun-kyun látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Lee Sun-kyun lætur eftir sig eiginkonu, leikkonuna Jeon Hye-jin, og tvo syni.
Lee Sun-kyun lætur eftir sig eiginkonu, leikkonuna Jeon Hye-jin, og tvo syni. Getty

Suðurkóreski leikarinn Lee Sun-kyun, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í Óskarsverðlaunamyndinni Parasite, er látinn. Hann varð 48 ára að aldri.

Erlendir fjölmiðlar segja hann hafa fundist látinn í bíl í einum af stærstu almenningsgörðum höfuðborgarinnar Seúl. Að sögn lögreglu segir að óljóst sé hvort hann hafi svipt sig lífi en að tilkynning hafi borist um að hann hafi yfirgefið heimili sitt og skilið þar eftir handskrifaðan miða.

Lee Sun-kyun hafði verið nokkuð í fréttum síðustu vikurnar eftir að lögregla í Suður-Kóreu hóf rannsókn á meintri fíkniefnaneyslu leikarans í október.

Yonhap segir að hann hafi verið grunaður um að hafa neytt fíkniefna með starfsmanni veitingastaðar í Seúl. Hafi hann viðurkennt að hafa neytt efnanna sem starfsmaðurinn hafi gefið honum en ekki gert sér greint fyrir að um ólögleg fíkniefni hafi verið að ræða. Þá segir að umræddur starfsmaður hafi greint lögreglu frá því að leikarinn hafi oft áður neytt fíkniefna á heimili hennar, en leikarinn sagði það þó ekki vera rétt.

Leikaraferill Lee Sun-kyun spannaði rúma tvo áratugi og fór hann á þeim tíma með aðalhlutverk í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta. Hann sló í gegn á alþjóðlegum vettvangi eftir hlutverk sitt sem Park Dong-ik í myndinni Parasite, föðurinn í hinni auðugu Park-fjölskyldu í myndinni.

Parasite vann til fernra Óskarsverðlauna árið 2020, þar með talið bestu mynd ársins, en það var í fyrsta sinn sem kvikmynd þar sem ekki er töluð enska, vann verðlaunin sem besta erlenda mynd.

Lee Sun-kyun lætur eftir sig eiginkonu, leikkonuna Jeon Hye-jin, og tvo syni.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.