Ætlar upp á drottninguna á árinu Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. janúar 2024 19:35 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að hætta að grána á árinu, eyða tíma með vinum og klífa Herðubreið, drottningu íslenskra fjalla. Samsett/Vilhelm Formenn þingflokkanna fóru yfir áramótaheit sín fyrir árið 2024 í Kryddsíld á gamlársdag. Þar kenndi ýmissa grasa, loforð um sumarfrí, minna álag og nýjan hund. Áætlanir um að verða öflugri en nokkru sinni fyrr og loforð um minna mas. Utanríkisráðherra ætlar að hætta að grána, hitta vini og klífa drottningu íslenskra fjalla, Herðubreið.
Hér fyrir neðan má sjá brot úr Kryddsíldinni þar sem farið var yfir áramótaheitin fyrir árið 2024. Sigurður Ingi, formaður Framsóknarflokksins, sagðist vera orðinn svo gamall að hann væri búinn að uppgötva að það þýddi ekkert að gera áramótaheit nema maður „raunverulega“ ætli sér það. Áramót séu þó tilefni til að hugsa hvort maður geti ekki gert aðeins betur. Hann sagði síðan að margir hefðu spáð því að ríkisstjórnin myndi springa á nýju haldi. Við því sagði hann: „Við ætlum að hafa þetta í lagi. Þetta verður í lagi.“ Sigurður Ingi var stóískur að vanda.Stöð 2 Sms gæti tryggt nýjan hund Sigmundur Davíð, formaður Miðflokksins, fór í allt aðra átt. „Það er þetta hefðbundna, að grennast og verja meiri tíma með fjölskyldunni,“ sagði hann og þá heyrðist í Sigurði Inga „þú verður að meina það.“ Kosturinn við áramótaheit samanborið við kosningaloforð, væri sá að ef maður stæði ekki við það gæti maður „endurnýjað það, endurnýtt það endalaust ár eftir ár. Það á ekki við í stjórnmálunum eða ætti ekki að eiga við,“ sagði Sigmundur. Sigmundur lék á als oddi í Kryddsíldinni og grínaðist mikið.Stöð 2 Sigmundur ljóstraði einnig upp um eitt. Eiginkona hans og dóttir hefðu óskað eftir nýjum hundi eftir að Emma, gamli hundurinn, lést. Að sögn Sigmundar yrði það að vera hundur sem geltir ekki og fer ekki úr hárum og helst hund sem „hatar ekki blaðbera af áfergja eins og Emma mín blessuð gerði.“ Ef þær mæðgur væru að fylgjast með Kryddsíldinni gætu þær sent sms fyrir klukkan 18 og þá fengju þær hundinn. Ef ekki þá fengju þær hundinn ekki. Fjölskyldan í fyrsta sæti Þorgerður Katrín, formaður Viðreisnar, grínaðist aðeins með endurnýtt áramótaheit. Hún væri sjálf eins og ríkisstjórnin með sín endurnýttu kosningaloforð. Hins vegar sagðist hún ætla sér að fara meira út að ganga með hundinn á nýju ári og styðja vel við bakið á börnum sínum. Áramótaheit Katrínar og Þorgerðar Katrínar snerust bæði um að verja tíma með fjölskyldunni.Stöð 2 Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, var bjartsýn fyrir hönd íslensks samfélags en undirbúningur fyrir áramótaheit næsta árs var þegar hafinn. Hún hafði uppgötvað í lok árs 2023 að fjölskyldan hafði ekki tekið sér neitt sumarfrí og að 2024 ætlaði fjölskyldan að taka sér sumarfrí saman. Ætlar að verða öflugri en nokkru sinni fyrr Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, rifjaði upp að síðustu áramót hafi hún talað um að hún ætlaði að tálga af sér aukakílóin en „einhverra hluta vegna er þetta allt fast,“ sagði hún. Inga losnar kannski ekki við aukakílóin en hún ætlar samt að verða öflugri en nokkru sinni fyrr.Stöð 2 „Þeim hefur ekki fjölgað sérstaklega en sannarlega finnst mér þau ekki hafa verið á undanhaldi. Ég nenni ekki að ljúga að sjálfri mér þessi áramótin eina ferðina enn hvað það varðar. Það kemur bara ef það kemur,“ sagði Inga. Hins vegar væri hún með áramótaheit fyrir samfélagið og fólkið sem hún væri að berjast fyrir inni á Alþingi. „Núna er það mitt loforð og áramótaheit að ég mun verða öflugri inni á Alþingi Íslendinga á næsta ári heldur en ég hef nokkurn tímann verið til þessa,“ sagði Inga. Spurningin væri ekki bara um fleiri ræður heldur það sem hún hefði að segja. Áramótaheit sem stangast á Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagðist almennt ekki setja sér mjög hörð áramótavilyrði. Hún væri með eitt faglegt áramótaheit og eitt persónulegt. „Þau stangast því miður pínulítið á en við verðum að sjá hvort gefur eftir,“ sagði hún. Kristrún ætlar bæði að minnka álagið og ferðast um allt landið í málefnavinnu.Stöð 2 Faglega áramótaheitið væri að ljúka við málefnavinnu í atvinnu- og samgöngumálum, hitta hundrað fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu í janúar og fara hringinn í kringum landið. „Á persónulegum nótum ætla ég að reyna að yfirbóka mig ekki. Þetta kann aðeins að stangast á við áætlunina í janúar og febrúar. Ég á það til, eins stundvís og ég vil segja að ég sé, sérstaklega eftir að ég eignaðist seinna barnið mitt, að vera oftar sein en ég var,“ sagði Kristrún. Ætlar að hitta vini og hætta að grána Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlaði að halda áramótaheitunum á léttu nótunum: „Ég er að reyna að hætta að grána og ég ætla að leggja mig fram um það á næsta ári.“ „Það er rosalega mikilvægt þegar maður er í annasömu starfi að hafa vit á því af og til að hitta vini sína og leika sér aðeins. Ég ætla að passa upp á það þegar ég finn tíma að fara og gera skemmtilega hluti. Á þeim nótum eru staðir sem ég á eftir að heimsækja á Íslandi sem mig langar rosalega að koma á,“ sagði Bjarni. Bjarni og Kristrún tókust hart á um ýmis mál í Kryddsíldinni.Stöð 2 „Ég hef lengi ætlað að fara upp á Herðubreið, standa þar uppi og horfa yfir sléttuna. Mig langar gríðarlega mikið til að gera það. Ég vona að það geti orðið á þessu ári,“ sagði Bjarni um áætlanir sínar á nýju ári. Kolbeinn Tumi, fréttastjóri, greip þá yfirlýsingu á lofti og sagði „Fara upp á drottninguna, það er draumurinn?“ sem Bjarni svaraði játandi. Inga Sæland var þó ekki nógu ánægð og fussaði yfir orðalaginu. Bjarni sagði þá „Hún er þarna drottning í þessu landslagi. Það er enginn dónaskapur að segja þetta. Þetta er alþekkt.“ Einnig sagðist hann eiga eftir að fara á ákveðna stað á Vestfjörðum, bæði Hornbjarg og Jökulfirðina. Það væri meðal markmiða ársins. Hamfaravinna góð reynsla til að eiga við ríkisstjórnina Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, ætlar að reyna að eyða meiri tíma með fjölskyldunni, börnum og barnabörnum. Það væri ekki auðvelt þar sem Alþingi væri „ófjölskylduvænasti vinnustaður“ sem hann hefði unnið á. „Faglega séð ætla ég að tala minna... úr ræðustól. En meira bak við tjöldin. Ég hef verið að gera það mikið í haust, tala við ráðherrana og stjórnarþingmennina og fá hluti til að færast fram á ákveðnum sviðum,“ sagði hann um markmið sín á faglega sviðinu. Gísli sagðist hafa nýtt sér reynslu úr vinnu sinni við að eiga við hamfarir út um víðan heim. Sigmundur Davíð greip þá fram í og sagði „Að eiga við hamfarir, það er reynsla til að fást við ríkisstjórnina,“ sem uppskar mikinn hlátur. „Þið ættuð að gefa út Brandarablaðið,“ sagði Bjarni þá og benti á Gísla Rafn og Sigmund. Gísli svaraði þá að hann þyrfti að gefa Bjarna bókina sem hann skrifaði um krísustjórnun. „Við höfum lent í ýmsu. Ég gæti líka kennt þér ýmislegt,“ svaraði þá Bjarni. Gísli og Bjarni grínuðust hvor í öðrum. Á nýju ári ætlar Gísli að tala minna úr ræðustól og Bjarni að vera duglegur að leika sér með vinum.Stöð 2
Alþingi Kryddsíld Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Vinstri græn Píratar Flokkur fólksins Miðflokkurinn Viðreisn Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Fleiri fréttir Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Sjá meira