Íslandsmeistararnir fá öflugan liðsstyrk Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. janúar 2024 15:25 Jasmín Erla Ingadóttir og stöllur hennar í Stjörnunni laumuðu sér upp í Evrópusæti í næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar og geta tryggt sér sætið á morgun. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Jasmín Erla Ingadóttir, markadrottning Bestu deildarinnar 2022, er farin frá Stjörnunni og hefur skrifað undir hjá Íslandsmeisturum Vals.
Valur tilkynnti félagsskiptin á Facebook síðu sinni rétt í þessu. Félagið samdi sömuleiðis á dögunum við Hailey Allende Whitaker, 23 ára bandarískan bakvörð sem kemur frá Auburn háskólanum. Áður hafði félagið samið við Katie Cousins frá Þrótti og Helenu Ósk Hálfdánardóttur frá Breiðabliki. Jasmín hefur leikið með Stjörnunni síðan árið 2019 en aldrei unnið titil með félaginu. Metnaðurinn er mikill og markmiðin eru skýr: „Aðalatriðið er að hjálpa liðinu að ná þeim markmiðum sem við stefnum að. Ég vil berjast um titla, fara lengra í Evrópu og bæta mig sem leikmann“ sagði Jasmín við undirritun samningsins. „Jasmín er frábær leikmaður sem kemur bæði með töfra í sóknarleikinn en einnig vinnusemi í varnarleikinn. Hún er með mikla reynslu úr Bestu deildinni sem mun klárlega hjálpa okkur í sumar“ sagði Ásgerður Stefanía Baldursdóttir einn af þjálfurum meistaraflokks kvenna hjá Val um Jasmíni. Þrátt fyrir mikinn liðsstyrk hafa meistararnir misst nokkra lykilmenn frá sér, Ásdís Karen Halldórsdóttir, Þórdís Elva Ágústsdóttir og markadrottningin Bryndís Arna Níelsdóttir eru allar farnar í atvinnumennsku.
Íslenski boltinn Besta deild kvenna Stjarnan Mest lesið Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Handbolti „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ Enski boltinn Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Enski boltinn Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron Körfubolti Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Enski boltinn „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Körfubolti Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira