Lýsa upp völlinn og birta skilaboð til heiðurs Beckenbauer Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. janúar 2024 23:01 Sjá má skilaboðin „Danke Franz“ utan á Allianz Arena. Vísir/Getty Þýska stórveldið Bayern München mun lýsa upp heimavöll sinn, Allianz Arena, næstu daga og senda skilaboð til heiðurs Franz Beckenbauer, sem lést síðastliðinn sunnudag.
Keisarinn, eins og Beckenbauer var oft kallaður, lék lengst af ferilsins með Bayern München. Hann varð fjórum sinnum þýskur meistari og fjórum sinnum bikarmeistari með liðinu, vann Meistaradeild Evrópu þrjú ár í röð (1974-76) og Evrópukeppni bikarhafa einu sinni. Hann lést síðastliðinn sunnudag eftir að hafa glímt við veikindi í nokkurn tíma, 78 ára að aldri. Bayern München mun því senda sinni gömlu hetju skilaboð næstu daga þar sem honum er þakkað fyrir allt sem hann gerði fyrir félagið. Bayern sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem kemur fram að á Allianz Arena megi sjá sérstök skilaboð næstu daga, Keisaranum til heiðurs. „Takk fyrir allt, Franz Beckenbauer,“ segir í tilkynningu Bayern. „Til að minnast „Keisarans“ munum við lýsa upp Allianz Arena með orðunum „Takk Franz“ á milli 16:30 og 22:00 næstu daga.“ „Til að loka þessu verður hægt að sjá skilaboðin milli 16:30 og 00:30 á föstudaginn, á meðan FC Bayern spilar heimaleik sinn gegn TSG 1899 Hoffenheim.“ Thank you, Franz ❤️ Allianz Arena to be illuminated in memory of Franz Beckenbauer.— FC Bayern Munich (@FCBayernEN) January 9, 2024
Þýski boltinn Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira