Erlent

Fann lík sonar síns fyrir 35 árum og er nú grunaður um morðið

Jón Þór Stefánsson skrifar
Faðir Justins litla, Victor Lee og stjúpmóðir drengsins, Megan R. Turner, voru handtekin á dögunum.
Faðir Justins litla, Victor Lee og stjúpmóðir drengsins, Megan R. Turner, voru handtekin á dögunum. Berkeley County Sheriff

Foreldrar bandarísks drengs sem fannst látinn árið fyrir rúmum þremur áratugum hafa verið handteknir og eru grunaðir um að hafa orðið honum að bana.

Victor Lee Turner fann lík sonar síns, Justin Turner, þann 5. mars 1989 í skáp í hjólhýsi fjölskyldunnar í Suður Karólínu-ríki Bandaríkjanna.

Atvikið var fest á filmu af NBC-sjónvarpsstöðinni. Myndefnið sýnir Victor ganga inn í hjólhýsið og koma út skömmu síðar og fullyrða að hann hafi fundið son sinn. Nokkru síðar sést Victor grátandi.

Justins, sem var fimm ára gamall, hafði verið leitað tvo daga. Foreldrar hans sögðu að hann hafa farið með skólarútunni þann þriðja mars og ekki hafa skilað sér heim.

Justin Turner.Berkeley County Sheriff

„Hann fór aldrei í rútuna. Hann mætti aldrei í skólann,“ hefur New York Times eftir Duane Lewis, lögreglustjóranum í Berkeley-sýslu þar sem atburðir málsins hafa átt sér stað. „Það er vegna þess að hann var myrtur. Það voru stjúpmóðir hans og faðir hans sem myrtu hann í hjólhýsi fyrir aftan húsið þeirra.“

Líkt og áður segir hefur Victor nú verið handtekinn vegna andlátsins, sem og stjúpmóðir drengsins Megan R. Turner. Handtakan fór fram á heimili þeirra, á sama stað og lögreglustjórinn vill meina að morðið hafi átt sér stað.

„Ég get ekki hugsað mér neitt hörmulegra eða skelfilegra morð,“ segir Lewis lögreglustjóri. Talið er að Justin hafi látist vegna kyrkingar.

Mál Justins hafði verið óleyst um áratugaskeið þegar rannsókn á því hófst á ný árið 2021. Rannsakendur skoðuðu sönnunargögn bæði frá vettvangi og úr krufningu, og með hjálp nýrrar tækni hefur lögreglan vestanhafs leitt að því líkur að Victor og Megan beri ábyrgð á dauða Justins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×