Andrea Róberts selur í Garðabænum Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 17. janúar 2024 15:18 Andrea festi kaup á húsinu árið 2022. Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri hjá FKA, hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við Tjarnarflöt í Garðabæ á sölu. Húsið var byggt árið 1967 og er á einni hæð. Ásett verð er 189 milljónir. „
Fuglasöngur á dásamlegum stað með drauma nágranna 360° í kringum húsið. Hvað liggur þér á hjarta? spyr Facebook þegar ég deili þessum hlekk sem segir sanna sögu af mér í persónulega lífinu sem er sú að við erum opin fyrir því að selja húsið okkar,“ skrifar Andrea og deilir færslunni á Facebook. Fasteignaljósmyndun Andrea segir húsið staðsett við götu sem hefur átt sérstakan stað í hjarta hennar frá unga aldri. Margir velta því þá eflaust fyrir sér hvers vegna hún vilji flytja á ný. En fjölskyldan festi kaup á eigninni árið 2022 eftir að hafa selt einbýlishús við Hvannalund 15 í Garðabæ. „Þið sem mig þekkja vitið að það er ávallt mikil framkvæmdagleði í gangi og umframorka í stórum skömmtum - og það virðist ekkert vera að minnka með árunum. Þannig að þetta gæti verið upphafið á einhverju nýju ef fólk sýnir þessari glæsilegu eign áhuga næstu daga. Þá erum við geim – svo einfalt er það,“ skrifar Andra um ákvörðunina. Um er að ræða 195 fermetra einbýlishús á einni hæð. Samtals eru þrjú svefnherbergi, með möguleika á því fjórða, og tvö baðherbergi. Heimili fjölskyldunnar er innréttað á fallegan máta þar sem gráir litatónar, viður og grænar plöntur eru í forgrunni. Miðrými hússins er bjart með góðri lofthæð og samanstendur af stofu og borðstofu. Þaðan er gengið inn í eldhús með hvítri innréttingu. Inn af eldhúsi er þvottahús, þaðan er útgengt í stóran skjólsæla garð með háum trjám. Í kringum húsið er timburverönd með heitum potti og glerskáli sem nýtist allan ársins hring. Nánari upplýsingar má finna á fasteignavef Vísis. Fasteignaljósmyndun Fasteignaljósmyndun Fasteignaljósmyndun Fasteignaljósmyndun Fasteignaljósmyndun
Fasteignamarkaður Garðabær Hús og heimili Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið Peabo Bryson er látinn Tónlist Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira