Garðabær

Garðabær

Mannfjöldi: 20.116 (2025). Flatarmál: 46 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Glæsi­legar í Gamla Bíói

Nítján stúlkur kepptust í vikunni um titilinn Ungfrú Ísland í Gamla bíói. Þær gengu meðal annars um á sundfötunum og svöruðu spurningum um málefni líðandi stundar sem og um málefni sem brenna á þeim. Keppnin einkenndist af glamúr, glimmeri og glæsilegheitum.

Lífið
Fréttamynd

Sögu­frægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru

Íbúar í Garðabæ hafa margir hverjir lýst yfir áhyggjum af niðurníðslu húsa á Vífilsstöðum, sem að margra mati voru virðuleg hér áður fyrr. Börn og ungmenni hafa gert það að vana sínum að brjótast inn í húsin en Garðabær og talsmenn Landspítalans segjast kappkosta að tryggja öryggi á svæðinu. Áform eru um að gera húsin upp í sinni upprunalegu mynd í samráði við Minjastofnun.

Innlent
Fréttamynd

Þörf eftir sér­tæku hús­næði fyrir yngri en 25 muni „fara veru­lega vaxandi“

Nokkuð löng bið getur verið eftir plássi í skammtímadvöl í Kópavogi og eftir sértæku húsnæði. Tuttugu börn biðu í lok mars eftir dvöl í skammtímadvöl, elsta umsóknin er frá því í ágúst 2021. Þá bíða 28 eftir sértæku húsnæði. Meðalaldur umsækjenda er 39 ár og segir í samantekt velferðarsviðs bæjarins að þörfin muni fara verulega vaxandi hjá þeim sem yngri eru en 25 ára. 

Innlent
Fréttamynd

Álfta­nes – ný byggð á flóðasvæði

Garðabær hefur í tveimur áföngum frá 2019 kynnt skipulag á Álftanesi á svokölluðu Norðurnesi, gegnt Bessastöðum. Meginatriði þessa skipulags er annars vegar nýr golfvöllur og hins vegar ný íbúðabyggð með sérbýli.

Skoðun
Fréttamynd

„Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“

„Ég hef alltaf þurft að takast á við fordóma gagnvart húðlitnum mínum. Oftast öráreitni, en líka rasískar hótanir á netinu og í persónu. Þetta hafði gríðarleg áhrif á líf mitt, sjálfstraustið mitt og vellíðan. Ég vissi samt snemma að eina leiðin sem ég get barist gegn kynþáttafordóma er að nota mína rödd og gera eitthvað gott úr því,“ segir Klara Wanjiru Sindradóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026.

Lífið
Fréttamynd

Ó­sætti vegna dymbil­viku­lokana í leik­skólum Garða­bæjar

Foreldrar leikskólabarna í Garðabæ setja út á lokanir í dymbilvikunni. Útfærsla Reykjavíkurborgar sé hentugri en þar geti foreldrar valið hvort þeir nýti leikskólapláss eða ekki. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir breytingarnar hafa verið til þess að minnka álag á leikskólastarfsmenn.

Innlent
Fréttamynd

Voru send í skólasund eftir slysið

Neyðarlínan segist ekki hafa fengið fullnægjandi upplýsingar þegar bíll gjöreyðilagðist eftir aftanákeyrslu á hópferðabíl fullum af börnum fyrir tæpum tveimur vikum. Sjúkrabíll hefði verið sendur samstundis á vettvang hefðu þær borist. 

Innlent
Fréttamynd

Ó­sátt með á­byrgðar­leysi eftir að börn lentu í bíl­slysi á skóla­tíma

Foreldrar barna í Urriðaholtsskóla saka skólann og Garðabæ um ábyrgðarleysi eftir að börnin þeirra lentu í árekstri á leið í skólasund. Börnin voru send fótgangandi í sund og þegar eitt foreldrið bað um að haldinn yrði foreldrafundur sagði skólastjórinn ekki telja ástæðu til. Þau ætla að biðja um fund með Garðabæ til að fá lausn í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Ekki er allt sem sýnist í rekstri Garða­bæjar

Í yfirlýsingum bæjaryfirvalda í Garðabæ er rætt um sterkan rekstur og trausta afkomu. Þegar fjárhagsáætlunin er skoðuð nánar kemur annað í ljós. Tekjumódelið byggir of mikið á sölu lóða til að fegra myndina, og ef byggingamarkaðurinn kólnar, eins og fleiri og fleiri vísbendingar gefa til kynna, mun það bitna á þjónustu bæjarins, sem íbúar reiða sig á.

Skoðun
Fréttamynd

Fjölga plássum og breyta nafni eins leik­skóla

Fjölga á leikskólaplássum á Hjallastefnuleikskóla í Garðabæ um 30 á næsta ári. Garðabær og Hjallastefnan hafa undirritað samkomulag um áherslur uppbyggingar skólasamfélags Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. 

Innlent
Fréttamynd

Ekið á skólarútu

Eitthvað var um meiðsli að sögn lögreglu eftir að ekið var á skólarútu í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ.

Innlent
Fréttamynd

Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn

Brynju Dan Gunnarsdóttur hefur verið gert að víkja sem oddviti Framsóknar í Garðabæ. Hún segist hvorki munu taka sæti á lista flokksins í komandi kosningum né styðja flokkinn á nokkurn hátt. 

Innlent
Fréttamynd

Segir gæði sér­náms heimilis­lækna í hættu

Gunnar Þór Geirsson, formaður félags íslenskra heimilislækna, segir ekki raunsætt að fólk fái tíma hjá heimilislækni innan fimm daga eins og viðmið landlæknis geri ráð fyrir. Hann kallar eftir því að sérnám heimilislækna verði styrkt, gæði námsins sé í hættu.

Innlent
Fréttamynd

Miðflokkur kynnir sex efstu í Garða­bæ

Efstu sex sæti Miðflokksins í Garðabæ hafa verið staðfest af stjórn kjördæmafélags Suðvesturkjördæmis. Lárus Guðmundsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, verður áfram oddviti flokksins.

Innlent