Lærisveinar Freys nældu í ótrúlegt stig Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. janúar 2024 21:36 Kortrijk hefur ekki tapað leik síðan Freyr tók við liðinu, @KVKOFFICIEEL Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Kortrijk nældu sér í ótrúlegt stig er liðið heimsótti Club Brugge í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Freyr hefur byrjað tíma sinn hjá botnliði Kortrijk vel og hafði liðið unnið einn leik og gert eitt jafntefli undir hans stjórn. Það voru þó heimamenn í Club Brugge sem byrjuðu leik kvöldsins betur og Philip Zinckernagel kom liðinu yfir strax á 16. mínútu. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins og staðan því 1-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Jonathan Afolabi jafnaði þó metin fyrir gestina snemma í seinni hálfleik áður en Massimo Bruno kom liðinu yfir á 68. mínútu. Brandon Mechele jafnaði hins vegar metin á ný fyrir Club Brugge á 78. mínútu og Igor Thiago virtist vera að tryggja heimamönnum sigur með marki þegar rétt um fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Lærisveinar Freys gáfust þó ekki upp og Djibi Seck bjargaði stigi fyrir gestina með marki á sjöundu mínútu uppbótartíma. Niðurstaðan varð því ótrúlegt 3-3 jafntefli og gott gengi Kortrijk undir stjórn Freys heldur áfram. Þrátt fyrir stigin fimm í síðustu þremur leikjum situr Kortrijk enn á botni belgísku deildarinnar, nú með 15 stig eftir 23 leiki. Club Brugge situr hins vegar í þriðja sæti með 41 stig.
Belgíski boltinn Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Sjá meira