Heitustu gellur og gaurar Laugardalsins á ógleymanlegu þorrablóti Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 6. febrúar 2024 07:02 Stuðið var mikið og fegurðin sömuleiðis. Anton Brink Mikil gleði og mikið stuð var á þorrablóti Laugardalsins sem fór fram í Þróttaraheimilinu á laugardagskvöld í annað sinn. Færri komust að en vildu en uppselt varð á gleðinu á skömmum tíma. Gestir næsta árs þurfa að hafa hraðar hendur til að missa ekki af stuðinu.
Það voru rauðir og hvítir Þróttarar sem skipulögðu blótið sem virðist falla vel í kramið hjá íbúum í Laugardalnum. Hefð sem er komin til að vera. Veislustjórinn Freyr Eyjólfsson var svo sannarlega á heimavelli enda mikill Þróttari. Þá fór Bolli Bjarnason á kostum í hverfisannálnum. Mugison mætti með gítarinn og nikkuna og fékk gesti til að taka vel undir. Regína Ósk Eurovision-stjarna var leynigestur og DJ Dóra Júlía hélt svo gestum á dansgólfinu fram á nótt. Anton Brink, ljósmyndarinn lipri á Seltjarnarnesinu, var með vélina á lofti og myndaði gesti áður en allt ætlaði um koll að keyra á dansgólfinu. Lifi Þróttur! Þrír af bestu mönnum Laugardalsins. Dr. Gunnar Ragnarsson mætti að sjálfsögðu og tók vel undir. Glæsilegir menn með flotta sixpensara. Höfuðfötin, jakkarnir og skyrturnar voru glæsilegar. Rómantíkin sveif að sjálfsögðu yfir vötnum. Það var staðið upp og sungið með. Stefán Hrafn Hagalín samskiptastjóri með fötu af bjór. Gin og Tonic er ekki bara fyrir aðdáendur Gumma Torfa. Líka þá sem elska Sigga Sveins og Palla Einars. „Nú er frost á Fróni frís í æðum Þróttarablóð“. Þóra Clausen og Katrín Atladóttir voru í banastuði ásamt vinkonum sínum. Þessir stuðboltar gáfu sér augnablik frá gleðinni og stilltu sér upp. Margur hatturinn sló í gegn. Bjarnólfur Lárusson formaður Þróttar hélt að sjálfsögðu tölu. Eitt glæsilegasta par Laugardalsins og þó víðar væri leitað. Hvítvín, freyðivín, nefndu það. Það var allt í boði. Kallarnir blésu varla úr nös þegar þeir blésu í blöðrur. Blésu aðallega með munninum. Laugardalurinn er ríkur af fegurðardísum. Björn Hlynur Haraldsson stillti sér upp með tveimur flottum Laugdælingum. Hjörtur Hjartarson hefur skorað þau ófá fyrir Þrótt í gegnum árin. Nú sparkar hann í bolta með old boys strákunum í hvítu og svörtu. Birna Hafstein var í banastuði. Eina Stellu takk! Litríkustu vinkonur kvöldsins í glæsilegum kjólum. Þessi hjón voru ekki að smakka þorramat í fyrsta sinn, það er næsta víst. Fólk var sólgið í slátrið hvort sem var lifrapylsuna eða blóðmörina. Þessar vöktu athygli fyrir glæsilega kjóla sína. Sviðakjammarnir voru vinsælir. Veisluborðið svignaði undan súrmetinu. Gestir voru hvattir til að deila myndum á samfélagsmiðlum undir merkinu #Lifi. Þessar vinkonur eru með meistaragráðu í því að skemmta sér. Þegar kom að verðlaunum fyrir eyru kvöldsins þá þurfti ekki að leita langt yfir skammt. Birgir Már Björnsson stjörnulögfræðingur sést hér fyrir miðju taka hressilega undir í fjöldasöngnum. Birgir Már er uppalinn í Garðabænum en kann vel við sig í Laugardalnum. Þróttarar buðu upp á lime út í gin og tonic drykkina. Gúrkan á ekki heima í drykknum á þorrablóti. Stefán Hrafn Hagalín faðmaði marga Þróttara þetta kvöldið. Skytturnar þrjár eiga ekkert í þessa meistara. Þótt úti hafi blásið þá var hlýtt á allan mögulegan máta inni í Þróttaraheimili. Bolli Már Bjarnason, Freyr Eyjólfsson, og Hjörtur Hjartarson. Gaman saman með bauk í hönd. Freyr veislustjóri ásamt úrvalshjónunum Bjarnólfi og Þóru. Ef ég sé með hattinn þá er Hjörtur Hjartar mér á hægri hönd! Tvö ástfangin.
Þróttur Reykjavík Þorrablót Samkvæmislífið Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Risastór tappakollur í fallegri íbúð Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Fleiri fréttir Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna Sjá meira