Hluthafar vilja drífa hlutafjáraukningu Play af
![„Það þarf ekki að finna peninga til að fjármagna félagið núna í dag eða í næsta mánuði. Það er verið að benda á það að til þess að við náum að standa við áætlanir okkar — leigja næstu flugvélar og tryggja rekstrarhæfi félagsins til og eftir tólf mánuði — þá munum við fara í þetta útboð,“ sagði Birgir Jónsson, forstjóri Play.](https://www.visir.is/i/D199FED78D7A1DA2A9DA46C60CED7DAB60DD689B2D06D71023448BE4DED062F6_713x0.jpg)
Stór hluthafi í Play segir æskilegt í ljósi þess að tilkynnt hafi verið um að til standi að auka hlutafé flugfélagsins að það verði gert á næstu dögum og helst ekki síðar en í þessum mánuði. Til skamms tíma ætti fyrirhugað hlutafjárútboð að leiða til þess að gengi bréfa félagsins haldist niðri en forstjóri Play hefur sagt að hlutafjáraukninguna þurfi ekki á næstu mánuðum til að fjármagna reksturinn.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/9C8D6588B04D0EC8DE1368E1C88C607DA180E9BA57C813EB404F9E820307EDC8_308x200.jpg)
Rannsóknin snúi að upplýsingagjöf en ekki viðskiptum
Forstjóri Play segir að rannsókn Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á mögulegum brotum félagsins á lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum snúi ekki neinum viðskiptum sem hafi verið gerð, heldur aðeins hvort félagið hefði átt að senda upplýsingar fyrr á markaðinn.
![](https://www.visir.is/i/3C2F30481BFEB244A50D175DAC7A6D926B806F74D0742DAC97D77980C11F04A0_308x200.jpg)
Þróunin í ferðaþjónustu á næstunni er „einn helsti áhættuþátturinn“
Vísbendingar eru um að jarðhræringarnar á Reykjanesi séu að hafa talsverð neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna í upphafi ársins og „einn helsti áhættuþátturinn“ er hvernig þróunin verður í framhaldinu í atvinnugreininni, að sögn seðlabankastjóra. Ef hagkerfið fer að kólna hraðar en nú er spáð vegna samdráttar í ferðaþjónustu er „alveg klárt“ að það mun flýta fyrir vaxtalækkunum.
![](https://www.visir.is/i/5D4376009D7CCE404069288CD5A63D4C5727E3B7C853A288A1966F354929E8CE_308x200.jpg)
Vísbendingar um að ferðamönnum fjölgi ekki í ár - jafnvel samdráttur
Vísbendingar eru um að það verði ekki vöxtur í fjölda ferðamanna í ár og jafnvel samdráttur, segir forstjóri eins stærsta ferðaþjónustu fyrirtækis landsins. Það er þvert á opinberar spár.