Lífið

Til­nefningar til kvik­mynda­verð­launa Eddunnar

Lovísa Arnardóttir skrifar
Nokkrar af þeim myndum sem eru tilnefndar í ár.
Nokkrar af þeim myndum sem eru tilnefndar í ár.

Tilnefningar til Kvikmyndaverðlauna Eddunnar 2024 voru tilkynntar í dag. Á ferð með mömmu, Tilverur og Villibráð eru allar tilnefndar sem kvikmynd ársins.

Verðlaunin hafa verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni frá árinu 1999. Í tilkynningu frá Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar segir að í ár séu þáttaskil því kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunum hafi verið skipt upp. Kvikmyndaverðlaun Eddunnar 2024 verða afhent 13. apríl næstkomandi. Sjónvarpsverðlaunin verða afhent á haustmánuðum.

Þá verða heiðursverðlaun ÍKSA veitt ásamt tveimur nýjum verðlaunum. Erlend kvikmynd ársins verður verðlaunuð og Uppgötvun ársins en þau eru veitt einstaklingi sem ekki hefur hlotið tilnefningu áður í viðkomandi fagverðlaunaflokki en hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu.

Á hátíðinni í apríl verða veitt samtals 20 verðlaun til kvikmyndaverka sem frumsýnd voru á tímabilinu 1. janúar 2023 til 31. desember 2023.

Til kvikmyndaverðlauna Eddunnar í ár voru send inn alls 39 verk og 132 innsendingar til fagverðlauna. Heimildamyndir voru 8, heimildastuttmyndir 7, kvikmyndir 7 og stuttmyndir 11. 8 valnefndir, 41 einstaklingur sat í valnefndunum fyrir hina 20 verðlaunaflokka. KPMG hefur yfirumsjón með kosningu og talningu atkvæða.

Tilnefningar eru sem hér segir:

BARNA- OG UNGLINGAMYND ÁRSINS

Konni

Sætur (Felt Cute)

Þið kannist við…

ERLEND KVIKMYND ÁRSINS

Anatomy of a Fall (Fallið er hátt)

Fallen Leaves

Killers of the Flower Moon

Oppenheimer

Past Lives

HEIMILDAMYND ÁRSINS

Heimaleikurinn

Skuld

Smoke Sauna Sisterhood

HEIMILDASTUTTMYND ÁRSINS

Konni

Super Soldier

Uppskrift: lífið eftir dauðann

KVIKMYND ÁRSINS

Á ferð með mömmu

Tilverur

Villibráð

STUTTMYND ÁRSINS

Dunhagi 11

Sorg etur hjarta

Sætur (Felt Cute)

BRELLUR ÁRSINS

Davíð Jón Ögmundsson, Dragos Vilcu, Árni Gestur Sigfússon & Rob Tasker fyrir Napóleonsskjölin

Jean-Michel Boublil, Jörundur Rafn Arnarson fyrir Northern Comfort

Atli Þór Einarsson fyrir Óráð

BÚNINGAR ÁRSINS

Helga Rós V. Hannam fyrir Á ferð með mömmu

Helga Rós V. Hannam fyrir Kulda

Arndís Ey fyrir Tilverur

GERVI ÁRSINS

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Á ferð með mömmu

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Kulda

Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Villibráð

HANDRIT ÁRSINS

Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu

Erlingur Óttar Thoroddsen fyrir Kulda

Tyrfingur Tyrfingsson og Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð

HLJÓÐ ÁRSINS

Matis Rei fyrir Á ferð með mömmu

Björn Viktorsson fyrir Northern Comfort

Huldar Freyr Arnarson fyrir Smoke Sauna Sisterhood

KLIPPING ÁRSINS

Gunnar B. Guðbjörnsson og Kristján Loðmfjörð fyrir Napóleonsskjölin

Hendrik Mägar fyrir Smoke Sauna Sisterhood

Ivor Šonje fyrir Tilverur

KVIKMYNDATAKA ÁRSINS

Óttar Guðnason fyrir Á ferð með mömmu

Árni Filippusson fyrir Napóleonsskjölin

Ants Tammik fyrir Smoke Sauna Sisterhood

LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI

Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Á ferð með mömmu

Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Tilverur

Gísli Örn Garðarsson fyrir Villibráð

LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI

Ólafur Darri Ólafsson fyrir Napóleonsskjölin

Hilmir Snær Guðnason fyrir Villibráð

Björn Hlynur Haraldsson fyrir Villibráð

LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI

Kristbjörg Kjeld fyrir Á ferð með mömmu

Elín Hall fyrir Kulda

Vivian Ólafsdóttir fyrir Napóleonsskjölin

LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI

Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Kulda

Selma Björnsdóttir fyrir Kulda

Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Villibráð

LEIKMYND ÁRSINS

Heimir Sverrisson fyrir Napóleonsskjölin

Hulda Helgadóttir, Eggert Ketilsson fyrir Northern Comfort

Heimir Sverrisson fyrir Villibráð

LEIKSTJÓRI ÁRSINS

Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu

Anna Hints fyrir Smoke Sauna Sisterhood

Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð

TÓNLIST ÁRSINS

Tönu Kõrvits fyrir Á ferð með mömmu

Daníel Bjarnason fyrir Northern Comfort

Eðvarð Egilsson fyrir Smoke Sauna Sisterhood


Tengdar fréttir

Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2023

Hvað er hægt að segja um kvikmyndaárið 2023? Það kom að mörgu leyti að óvart og þá sérstakla menningarfyrirbæri Barbienheimer. Þá eru vísbendingar um að við jarðarbúar séum að fá leið á ofurhetjumyndum.

Vann bikar og Eddu sömu helgina

Helgin var vægast sagt eftirminnileg fyrir Blæ Hinriksson. Á laugardaginn varð hann bikarmeistari í handbolta með Aftureldingu og á sunnudaginn vann kvikmyndin Berdreymi, sem hann leikur í, verðlaun sem besta kvikmyndin á Edduverðlaunahátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.