Upprúllun í Íslendingaslag Sveindísar og Selmu Sólar Smári Jökull Jónsson skrifar 17. febrúar 2024 13:31 Sveindís Jane í leik gegn Leverkusen á dögunum. Vísir/Getty Það var Íslendingaslagur í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar Nurnberg tók á móti Wolfsburg á heimavelli sínum.
Selma Sól Magnúsdóttir var í byrjunarliði Nurnberg í dag en hún gekk til liðs við félagið í janúar. Selma Sól hefur verið í byrjunarliði liðsins í öllum leikjunum síðan hún kom frá Rosenborg. Sveindís Jane Jónsdóttir er að koma til baka úr meiðslum og byrjaði á bekknum hjá Wolfsburg eftir að hafa byrjað síðustu tvo leiki liðsins. Leikurinn sjálfur var fremur ójafn. Gestirnir komust í 1-0 strax á 7. mínútu og þó svo að heimakonur í Nurnberg hafi jafnað aðeins fimm mínútum síðar voru yfirburðir Wolfsburg töluverðir. Gestirnir komust í 4-1 áður en fyrri hálfleikur var á enda og í 5-1 strax í upphafi þess síðari. Sveindís Jane kom inn af bekknum á 65. mínútu og Wolfsburg átti eftir að bæta við fjórum mörkum eftir það. Sveindís lagði upp eitt þeirra og Wolfsburg fagnaði að lokum 9-1 sigri. Wolfsburg er í efsta sæti deildarinnar eftir sigurinn í dag. Liðið er tveimur stigum á undan Bayern Munchen sem á leik til góða. Selma Sól og liðsfélagar hennar í Nurnberg eru í næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar og tveimur stigum frá öruggu sæti.
Þýski boltinn Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira