KA missti af sæti í undanúrslitum þrátt fyrir öruggan sigur Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. mars 2024 18:14 Ásgeir Sigurgeirsson skoraði tvö fyrir KA í dag. Vísir/Hulda Margrét KA vann öruggan 3-0 sigur er liðið heimsótti Leikni R. í riðli 4 í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag.
KA-menn þurftu á sigri að halda til að eiga möguleika á að vinna riðilinn og næla sér þannig í sæti í undanúrslitum. Liðið þurfti þó á sannkölluðum risasigri að halda til að vinna upp markatölu toppliðs ÍA. Lengst af benti ekkert til þess að gestirnir í KA myndu vinna stórsigur, en Ásgeir Sigurgeirsson kom liðinu yfir þegar aðeins átta mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Aðeins tveimur mínútum síðar var staðan orðin 2-0 þegar Bjarki Arnaldarson varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og aðeins mínútu eftir það fékk Andi Hoti, leikmaður Leiknis, að líta beint rautt spjald og heimamenn þurftu því að leika síðustu mínútur leiksins manni færri. Norðanmenn nýttu sér liðsmuninn þegar Ásgeir Sigurgeirsson skoraði annað mark sitt og þriðja mark KA á 89. mínútu og þar við sat. Niðurstaðan því 3-0 sigur KA sem endar í öðru sæti riðilsins með tíu stig, jafn mörg og topplið ÍA. Skagamemm enduðu þó með mun betri markatölu og fara í undanúrslit á kostnað KA.
Lengjubikar karla KA Leiknir Reykjavík Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir Apollon - FH | Fyrsti Evrópuleikur FH „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjá meira