Í ráðningarsamningi Geirs, sem samþykktur var árið 2022 þegar hann var ráðinn, kemur fram að hann sé með 1.750.000 í mánaðarlaun og fái greidda um þúsund kílómetra í aksturspeninga á mánuði.
Þar er einnig kveðið á um að biðlaun hans eigi að vera sex mánuðir og að þau eigi að skerðast fái hann aðra vinnu þar sem launin eru lægri. Ef launin eru hærri eigi greiðslurnar að falla niður. Það er í samræmi við bókun sem lögð var fram í bæjarráði af meirihlutanum eftir að hann var ráðinn.
„Í ráðningarsamningi við fyrrum bæjarstjóra voru akstursgreiðslur hluti af biðlaunum. Ekki var í ráðningarsamningi ákvæði um að biðlaun myndu falla niður ef viðkomandi fengi annað starf og var því fyrrum bæjarstjóra greidd sex mánaða biðlaun með launatengdum gjöldum að upphæð 20.058.749 sem við teljum óeðlilegt og er því þessu ákvæði breytt við gerð þessara samnings,“ segir í bókuninni en forveri Geirs er Aldís Hafsteinsdóttir.
Njörður Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar, segir að samkvæmt samkomulagi við Geir verði greiðslurnar greiddar út í samráði við hann.
„Það var ákveðið á fundinum í morgun að greiðslan yrði í samráði við hann og greitt út eins og það hentar,“ segir Njörður
En hvað gerist ef hann fær aðra vinnu?
„Í raun og veru erum við að greiða honum eins og hann fái ekki aðra vinnu,“ segir Njörður.
Ef miðað er við þá upphæð sem nefnd er í ráðningarsamningi þá á Geir að fá um 10,5 milljónir í greiðslu. Upphæðin er líklega aðeins hærri vegna kjarasamningsbundinna hækkana. Ofan á það eru orlofsgreiðslur og staðfestir Njörður að greiðslan sé í kringum 12 milljónir í heildina.
„Munurinn á honum og fyrrum bæjarstjóra er að fyrrum bæjarstjóri fékk líka um 1.500 kílómetra á mánuði greidda í sex mánuði eftir að hann hætti,“ segir Njörður.
Aldís fékk alls greiddar um 17 milljónir samkvæmt starfslokasamningi þegar hún hætti en auk þess fékk hún greidda aksturspeninga, um 1.500 kílómetra, í sex mánuði eftir að hún lét af störfum. Samanlagt voru það um 20 milljónir.
Dýrt fyrir sveitarfélagið
Eyþór H. Ólafsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði fyrr í vikunni að hann hefði áhyggjur af því að starfslok Geirs yrðu bænum dýr. Í yfirlýsingu sem Geir sendi frá sér í gær vegna málsins sagði hann um það að starfslok forvera hans hefðu kostað „margfalt meira“ en starfslok hans kosti bæinn.
Spurður af hverju var ákveðið að fara þessa leið, þrátt fyrir bókunina frá bæjarráði og þá gagnrýni sem kom fram þegar Aldís hætti, segir Njörður að það hafi verið samkomulagsatriði við Geir.
„Þetta er starfslokasamningur.“
En kom ekki til greina að greiða honum bara laun í sex mánuði og skerða þau ef hann fengi aðra vinnu?
„Jú, auðvitað kom það til greina en svo er þetta bara samkomulagsatriði á milli aðila.“
Uppfært: Eftirfarandi útreikningar bárust til fréttastofu frá Hveragerðisbæ.
- Biðlaun Geirs í sex mánuði eru samtals kr. 11.208.750. Mánaðarlaunin hans í dag eru kr. 1.868.125 en þau hafa hækkað í samræmi við kjarasamning sem launin voru tengd við í ráðningarsamningi.
- Geir átti áfallið orlof frá síðustu 11 mánuðum eða 27,5 daga sem gera kr. 2.071.211.
- Samtals mun Geir því fá greitt kr. 13.279.961.
Til samanburðar með biðlaun Aldísar Hafsteinsdóttur í maí 2022:
- Aldís átti 6 mánuði í biðlaun sem gerðu kr. 11.070.798 á verðlagi maí 2022.
- Hún átti áfallið orlof 54 daga eða 4.598.809 á verðlagi maí 2022.
- Hún fékk greiddan 1300 km á mánuði 6 mánuði eða kr. 889.200 á verðlagi maí 2022.
- Alls fékk hún því greitt kr. 16.558.807 án launatengdra gjalda en með þeim kr. 20.058.749 á verðlagi maí 2022.
- Ef við núvirðum þessar tölur frá maí 2022 til dagsins í dag til samanburðar að þá væru biðlaun hennar ef þau væru greidd út í dag án launatengdra gjalda kr. 18.888.202.