Þýðingarmikill leikur fyrir KR sýndur í beinni útsendingu Aron Guðmundsson skrifar 25. mars 2024 16:11 Jakob Örn Sigurðarson tók við þjálfun KR fyrir tímabilið og honum til aðstoðar hefur verið spilandi aðstoðarþjálfarinn Adama Darboe. Undir þeirra stjórn er KR nú hársbreidd frá sæti í Subway deildinni en þarf sigur í kvöld til að tryggja sætið MYND: KR Karfa Þýðingarmikill leikur Ármanns og KR í lokaumferð 1.deildarinnar í körfubolta verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 5 í kvöld. Beri KR sigur úr býtum er endurkoma liðsins í efstu deild staðfest og deildarmeistaratitill 1.deildar sömuleiðis.
Bein útsending frá leiknum, sem fer fram í Laugardalshöll, hefst klukkan fimm mínútur yfir sjö í kvöld. KR, sannkallað stórveldi í íslenskum körfubolta með átján Íslandsmeistaratitla á ferilskránni, féll niður úr efstu deild á síðasta tímabili. Jakob Örn Sigurðarson, fyrrverandi leikmaður félagsins, sem á að baki feril sem atvinnu- og landsliðsmaður, tók við þjálfun þess fyrir yfirstandandi tímabil og KR-liðið er sem stendur á tólf leikja sigurgöngu, á toppi 1.deildar fyrir lokaumferðina í kvöld og hefur aðeins tapað tveimur leikjum á tímabilinu. Skammt undan eru hins vegar ÍR-ingar með tveimur stigum minna. Fari svo að KR tapi í kvöld og ÍR vinni á sama tíma sinn leik í lokaumferðinni verður raunin sú að ÍR fer beint upp en KR færi þá í úrslitakeppni 1.deildar sem inniheldur liðin sem enda í öðru til fimmta sæti deildarinnar. Ansi spennandi kvöld framundan í 1.deildinni. Ekki missa af leik Ármanns og KR í lokaumferð deildarinnar í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 5 í kvöld.
Subway-deild karla Mest lesið Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Fótbolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Íslenski boltinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Íslenski boltinn Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Handbolti Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Sjá meira
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn