Innlent

Fjármálaráðherraflakkið minni á Tinder-sambönd

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þorbjörg Sigríður segir ríkisstjórnina á Íslandi farna að minna sig á Ítalíu.
Þorbjörg Sigríður segir ríkisstjórnina á Íslandi farna að minna sig á Ítalíu. Vísir/Arnar

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar segir fólk vera í lengri samböndum á stefnumótaforritinu Tinder en í stól fjármálaráðherra. Hún fullyrðir að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins verði þriðji fjármálaráðherrann á hálfu ári.

„Litla Ítalía?“ spyr Þorbjörg Sigríður í færslu á Facebook. Þingfundi var slitið eftir fimm mínútur í gær í ljósi óvissunnar með ríkisstjórnarsamstarfið eftir að Katrín Jakobsdóttir ákvað að segja skilið við forsætisráðherrastólinn og stjórnamálin og henda sér í forsetaframboð.

Sjálfstæðisflokkurinn afgreiddi samstarfstillögu á fundi þingflokksins í gær en þingflokkar VG og Framsóknar funda fyrir hádegi. Taldar eru líkur á því að efnt verði til blaðamannafundar eftir hádegið og niðurstaða úr viðræðum flokkanna þriggja kynntar. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru mestar líkur á að Bjarni Benediktsson verði forsætisráðherra og fjármálaráðuneytið fari undir Framsóknarflokkinn. 

„Í dag verður kynntur til leiks nýr fjármálaráðherra þegar Sigurður Ingi flytur sig úr innviðaráðuneytinu. Hann verður þá þriðji fjármálaráðherra Íslands á um hálfu ári. Fólk er í Tinder samböndum sem standa lengur en þessi stöðugleiki stóla ríkisstjórnarinnar,“ segir Þorbjörg Sigríður.

„Ríkisstjórn Íslands veitir Ítalíu harða samkeppni um pólitískan stöðugleika með því að rúlla ráðherrum á færibandi inn og út úr fjármálaráðuneytinu. Á meðan eru verðbólga og vextir í heimsins hæstu hæðum,“ segir Þorbjörg Sigríður.

„Ríkisstjórnin getur ekki kynnt fjármálaáætlun um aðgerðir gegn verðbólgu því starfsmannavelta fjármálaráðherra ríkisstjórnarinnar er svo mikil og mestur tími fer í að semja við sig sjálfa um ráðherrastól vikunnar. Og verðbólgan mallar áfram og vextir á lánum fólksins í landinu lækka ekki.“

Fylgst er með gangi mála í vaktinni á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×