Bíó og sjónvarp

Komu saman vegna þrjá­tíu ára af­mælis Pulp Fiction

Atli Ísleifsson skrifar
Harvey Keitel, Samuel L. Jackson Uma Thurman og John Travolta á rauða dreglinum.
Harvey Keitel, Samuel L. Jackson Uma Thurman og John Travolta á rauða dreglinum. AP

Það vantaði ekki stórstjörnurnar þegar haldið var upp á að þrjátíu ár væru í ár liðin frá frumsýningu kvikmyndarinnar Pulp Fiction, eða Reyfara eins og myndin var nefnd á íslansku. Margir aðalleikara myndarinnar söfnuðust af því tilefni saman sérstökum viðburði TCM Classic Film Festival í í Chinese Theatre í Los Angeles í gær.

Kvikmyndin, sem er í leikstjórn Quentin Tarantino, var á sínum tíma frumsýnd í Cannes í Frakklandi í maí 1994 og átti eftir að njóta gríðarlegra vinsælda um heim allan.

Meðal þeirra leikara sem mættu á viðburðinn í gær voru Uma Thurman, sem fór með hlutverk Mia Wallace í myndinni, John Travolta sem túlkaði Vincent Vega, Samuel L. Jackson sem fór með hlutverk Jules Winnfield og Harvey Keitel sem túlkaði The Wolf.

Að neðan má sjá myndir af viðburðinum í gær.

Fagnaðarfundir John Travolta og Umu Thurman.AP

Samuel L. Jackson og eiginkona hans LaTanya Richardson Jackson.AP

Phil LaMarr fór með lítið hlutverk í Pulp Fiction.AP

Mr Vincent Vega.AP

Uma og John tóku vafalaust dansspor á rauða dreglinum.AP

Rosanna Arquette var eftirminnileg í hlutverki sínu sem Jody.AP

Emma og Tallulah Willis, eiginkona og dóttir leikarans Bruce Willis sem fór með hlutverk Butch í myndinni. Bruce Willis glímir við heilabilun og var ekki viðstaddur viðburðinn í gær.AP

Uma Thurman var glæsileg á rauða dreglinum.AP

Leikkonan Julia Sweeney lét sig ekki vanta. Hún fór með hlutverk Raquel sem var með karakter. Eða hvað?AP

Tallulah Willis, dóttir Bruce WIllis.AP

Að neðan má svo sjá stiklu úr myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.