Innlent

Mót­mælendur fengu ó­væntan lið­styrk frá Hollywood

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Cynthia Nixon leikkona og aktívisti kom óvænt í stúdentamótmæli sem voru haldin til stuðnings Palestínu við Háskóla Íslands dag. Hún er m.a. þekkt fyrir hlutverk sitt í Beðmál í borginni eða Sex and the City.
Cynthia Nixon leikkona og aktívisti kom óvænt í stúdentamótmæli sem voru haldin til stuðnings Palestínu við Háskóla Íslands dag. Hún er m.a. þekkt fyrir hlutverk sitt í Beðmál í borginni eða Sex and the City. Vísir/Berghildur

Hópur háskólanema líkt og fjölmargir bandarískir kollegar þeirra reisti tjaldbúðir við aðalbyggingu Háskóla Íslands til stuðnings Palestínu í gær. Mótmælendum barst óvæntur liðsauki frá Hollywood þegar vinsæl stórleikkona dúkkaði óvænt upp og tók undir kröfur þeirra.

Stúdentar hafa síðustu daga reist tjaldbúðir við háskóla víðs vegar um heiminn aðallega þó í Bandaríkjunum til stuðnings Palestínu. Hópur háskólanema hér á landi gerði slíkt hið sama í gær og morgun.

Hópnum barst óvæntur liðstyrkur í dag þegar Hollywood-leikkonan og aðgerðarsinnin Cynthia Nixon mætti á staðinn ásamt fjölskyldu . Til upprifjunar þá lék hún til dæmis eitt af aðalhlutverkunum í þættinum Beðmál í borginni eða Sex and the City.

„Ég er hér á ferðalagi ásamt fjölskyldu minni og við vorum að skoða okkur um í borginni þegar við fréttum af mótmælunum. Okkur langaði að kíkja hingað og taka ofan fyrir stúdentunum.  Þeir vita líklega af aðgerðunum á háskólalóðum í BNA, en þeim hefur fjölgað gífurlega. Við reynum að gera okkar besta og ég tel að þessi hreyfing ungs fólks sé mög öflug. Telurðu að stjórnvöld leggi við hlustir? Þau þurfa að láta sig þetta varða því óréttlætið er hræðilegt og einnig vegna komandi forsetakosninga í nóvember. Ég er ein af þeim sem vill ekki að Trump verði endurkjörinn. En Joe Biden þarf að gera betur,“ sagði Cynthia Nixon í dag.

Hér má sjá viðtalið við Cynthiu í heild. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×