Innlent

Ís­lendingur í gæslu­varð­haldi vegna Hamraborgarmálsins

Árni Sæberg skrifar
Tuttugu til þrjátíu milljónum króna af spilakassapeningum af Videomarkaðnum í Hamraborg var stolið úr ómönnuðum sendibíl Öryggismiðstöðvarinnar þann 25. mars.
Tuttugu til þrjátíu milljónum króna af spilakassapeningum af Videomarkaðnum í Hamraborg var stolið úr ómönnuðum sendibíl Öryggismiðstöðvarinnar þann 25. mars. Vísir/Arnar

Íslenskur karlmaður um fertugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við þjófnað á tuttugu til þrjátíu milljónum króna í Hamraborg fyrir rúmum fimm vikum.

Í tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að Héraðsdómur Reykjaness hafi úrskurðað manninn, sem sé um fertugt, í gæsluvarðhald til 7. maí í gær. Í tilkynningu er þjóðerni mannsins ekki tilgreint en heimildir Vísis herma að hann sé íslenskur. 

Heimir Ríkarðsson, lögreglufulltrúi á lögreglustöðinni í Kópavogi, sem fer með rannsókn málsins, sagði lögregluna þurfa að halda spilunum þétt að sér, þegar Vísir náði tali af honum.

„Maðurinn var handtekinn í fyrradag í þágu rannsóknar lögreglu á innbroti og þjófnaði á fjármunum úr verðmætaflutningabifreið í Hamraborg í Kópavogi fyrir rúmum fimm vikum. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu,“ segir í tilkynningu. 

Peningarnir settir aftur í spilakassa

Samkvæmt heimildum Vísis rötuðu litaðir peningaseðlar í spilakassa á vegum Happdrættis Háskóla Íslands á dögunum. Maðurinn hafi verið handtekinn eftir að upptökur úr öryggismyndavélum staðarins sem hýsir spilakassana voru skoðaðar.

„Lögregla gefur á þessari stundu engar yfirlýsingar. Við getum ekki tjáð okkur um þetta mál eins og staðan er núna,“ sagði Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson rannsóknarlögreglumaður þegar Vísir náði tali af honum í fyrradag og bar undir hann hvort litaðir peningar væru komnir í umferð.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Þjófnaðurinn áfall fyrir reynslumikla öryggisverði

Sjö mínútur liðu frá því þjófarnir í Hamraborg brunuðu í burtu með sjö peningatöskur og þar til upp komst um þjófnaðinn. Þjófavarnakerfi í bíl Öryggismiðstöðvarinnar fór ekki í gang og engin melding barst fyrirtækinu um þjófnaðinn. Það var ekki fyrr en öryggisverðirnir komu að bílnum að upp komst um glæpinn. Þeir eru reynslumiklir og í áfalli að sögn framkvæmdastjóra.

Þjófunum yfir­sást taska með milljónum króna

Þjófarnir í Hamraborgarmálinu tóku ekki eftir poka sem innihélt milljónir króna í peningaflutningabílnum sem þeir stálu úr. Öryggismiðstöðin hefur ekki viljað tjá sig um málið.

Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin

Ein af töskunum sjö sem þjófarnir í Hamraborg höfðu á brott með sér úr sendiferðabíl Öryggismiðstöðvarinnar fyrir tæpum fjórum vikum er ófundin. Sú var stúfull af peningum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×