Lífið

Græn­metis­æta í 38 ár en ekki lengur

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Martin Freeman hefur áhyggjur af því að borða of mikið af unnum matvælum.
Martin Freeman hefur áhyggjur af því að borða of mikið af unnum matvælum. Scott Garfitt/BAFTA via Getty Images

Martin Freeman er hættur að vera grænmetisæta eftir að hafa verið það í 38 ár. Hinn 52 ára gamli leikari varð grænmetisæta sem unglingur árið 1986 vegna þess að honum fannst aldrei þægileg tilhugsun að borða dýr.

Í umfjöllun Sky fréttastofunnar kemur fram að leikarinn hafi tekið þá ákvörðun til þess að hann gæti borðað minna af unnum matvælum. Hann segir að hann hafi ávallt kunnað að meta grænmetisfæði en ýmsir kostir sem komi í stað kjöts séu afar mikið unnir.

„Ég er að reyna að borða minna af unnum matvælum,“ segir leikarinn. Hann vísar til þess að nýlegar rannsóknir bendi til þess að unnar matvörur geti aukið líkurnar á hinum ýmsu sjúkdómum sem tengjast hjarta-og æðakerfinu.

Þess er getið í umfjöllun Sky að rannsóknirnar bendi þó til þess að ýmsar grænmetislausnir falli ekki beint undir flokk sem unnar matvörur, það sé mismunandi á milli tegunda matvælanna og framleiðenda. Martin segir að hann hafi ekki fyrr en á síðustu mánuðum farið að prófa sig áfram og borða kjöt á nýjan leik eftir 38 ára hlé.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×