Lífið

Vin­skapurinn og gleðin staðið upp úr

Margrét Björk Jónsdóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Vinirnir Goggi og Siggi á afmælisfögnuðinum. 
Vinirnir Goggi og Siggi á afmælisfögnuðinum.  Vísir

Kaldi bar fagnar tíu ára afmæli í dag og var haldið upp á tímamótin með pompi og prakt. Eigandi staðarins segir vinskapurinn standa upp úr þegar litið er yfir farinn veg. 

Fullt var út úr dyrum og rífandi stemning þegar Margrét Björk fréttamaður kíkti við í Kvöldfréttum. Hún náði tali af Georg Leite eiganda Kalda og Sigurð Braga Ólafsson bruggmeistara kalda. 

„Þetta er fljótt að líða en það eru alveg tímamót að vita að við erum búin að gera þetta svona vel í tíu ár. Og þessi gleði sem er alltaf að skapast á Kalda er svo góð að maður er alveg tilbúinn að vera tíu ár í viðbót,“ segir Georg, eða Goggi, eins og viðskiptavinir Kalda kalla hann.

Hann segir alls ekki sjálfsagt að endast svo lengi í bar-bransanum. „Eins og ég segi, þá er bara númer eitt tvö og þrjú að hafa gaman. Og ég hef rosalega gaman af því sem ég geri,“ segir Goggi og nefnir samstarfið við Sigurð. „Það er rosalega gaman að vera til í þessu. Af því að við erum að skapa gleði fyrir fólk, og sjálfa okkur líka. “

Aðspurður hvort barinn Kaldi eða samnefnd bjórtegund hafi komið á undan hinu svarar Sigurður, eða Siggi, að bjórinn hafi vissulega komið á undan, og barinn heiti eftir bjórnum. 

„En ég ætla líka að taka undir það sem Goggi sagði, þetta er svo elskuleg samvinna að vinna með honum og strákunum sem vinna með honum. Þetta er svo mikið stöngin inn, þetta er bara æðislegt.“

Hvað stendur upp úr eftir þessi tíu ár?

„Vinskapurinn og allir sem eru í kringum okkur. Allir þessir fastakúnnar sem við erum með og allir sem er í kringum mig. Og að gefa alltaf gleði. Þetta er það sem skiptir máli fyrir okkar bissness, að hafa gaman að þessu,“ segir Goggi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×