Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn Lovísa Arnardóttir skrifar 28. maí 2024 11:18 Theódór Francis segir mikilvægt að börn séu gripin um leið. Annars geti skapast djúpstæður vandi sem erfitt sé að fást við síðar á lífsleiðinni. Samsett Á mánaðartímabili hafa komið upp fjögur tilvik þar sem veist er að eða setið um börn í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, segir þetta ástand geta haft mjög alvarleg áhrif á börnin. Þau geti alið með sér ótta, kvíða eða þunglyndi. Tilvikin eru enn til rannsóknar hjá lögreglu sem er með aukið eftirlit í hverfinu með foreldrum.
Fyrsta atvikið átti sér stað við Víðistaðatún í upphafi mánaðar. Viku síðar kom upp mál við Engidalsskóla, fyrir rúmri viku var karlmaður sagður hafa elt barn og boðið því nammi. Síðastliðinn miðvikudag veittist svo maður að stúlku á göngustíg skammt frá Víðistaðaskóla. „Það koma áfallaeinkenni í þessi börn,“ segir Theódór og að þau geti haft verulega mikil áhrif á þroska þeirra og sjálfsmyndarþroska þeirra. Theódór segist hafa rætt við foreldra sem hafa keypt piparúða fyrir barnið sitt vegna mikils ótta. Theódór fór yfir þessi mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Theódór segir áríðandi fyrir foreldra að ræða við börnin sín um það sem er í gangi. Þá sé hægt að komast að því hvaða áhrif það hefur haft á þau og hvort þau komist í gegnum það. Ef barnið er ekki að því þá þurfi að leita til heilsugæslu eða einkarekinna stofa og fá faglega aðstoð. „Óttinn verður svo mikill. Getur þetta komið fyrir mig? Og krakkarnir sem hafa lent í þessu, þau þurfa hundrað prósent á faglegri aðstoð að halda,“ segir Theódór og þá skipti engu máli hversu vandaðir, góðir, nákvæmir eða vel meinandi foreldrar þeirra eru. Mikilvægt að leita aðstoðar „Ef ég handleggsbrýt mig þá er alveg sama hvað ég er með gott bakland. Höndin er samt brotin, og þarna er brotið á þessum krökkum,“ segir Theódór og að það verði að grípa þau. Theódór segir að þótt svo það sé eðlilegt að fræða börn um ýmsar hættur sem gætu leynst í samfélaginu þá sé það sem hafi gerst hér, að karlmaður ráðist á börn og taki þau hálstaki, langt út fyrir það. Þetta mál sé svo alvarlegt að viðbrögðin séu ekki „móðursýki“. „Það gengur einhver um og misbeitir börnum.“ Theódór segir gott fyrir foreldra í öðrum hverfum líka að ræða við börn sín um það sem er að gerast í Hafnarfirði. Börn lesi fréttir og séu á samfélagsmiðlum. Mörg séu þau eflaust meðvituð um það sem hafi gerst og atvikin líklega í umræðu meðal þeirra. „En það má tala um að þetta séu undantekningar. Umhverfið á Íslandi er ekki orðið svona hættulegt,“ segir hann og að það megi kenna börnum einhver grundvallarviðbrögð lendi þau í slíkum aðstæðum. Theódór segir tvennt skipta máli í svona málum. Að fjölskyldur tali saman um svona mál en að þau tali líka um það sem sé gott og gangi vel. „Þetta læknar sig ekki sjálft,“ segir Theódór og að það sé alveg öruggt að ef það er ekki tekið á því áfalli sem þetta getur valdið börnum í dag þá muni það valda þeim ómældum skaða. Enn ekki búið að finna manninn Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir lögreglu enn ekki búna að hafa uppi á manninum sem réðst á stúlkuna. Alls er lögreglan í Hafnarfirði með til rannsóknar fjögur tilvik þar sem karlmaður veittist að börnum. Skúli segir ekki vitað hver það er eða hvort það hafi verið sami einstaklingurinn. „Við vitum ekkert hvort hann komi annars staðar frá eða hvort hann komi aftur. Kannski er hann farinn. Við erum með þetta í rannsókn og leggjum áherslu á að upplýsa þetta,“ segir Skúli. Lögregla hefur síðustu daga verið með aukið eftirlit vegna tilvikanna auk þess sem foreldrar í skólunum í hverfinu sinna virku eftirlit. Skúli Jónsson er aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Vísir/Vilhelm Hvað varðar forvarnir og umræðu við börn segir hann mikilvægt að foreldrar ræði við börn sín en segir hvorki börnum né foreldrum heimilt að ganga um með piparúða. „Þetta er auðvitað snúið en foreldrar þurfa að ræða við börn sín um þetta og þau tilvik sem hafa komið upp.“ Hann segir viðbrögð barnanna í þessum tilvikum sem eru til rannsóknar hafa verið til fyrirmyndar. Þar sem ráðist var á stúlku og hún tekin hálstaki beit hún í hönd árásarmannsins, sparkaði í hann og gaf honum olnbogaskot til að losa sig. Í öðru tilviki, þar sem stúlku var boðið nammi og hún elt, hljóp hún í burtu. „Þetta var mjög vel gert. Það er margslungið að ræða við börnin en það fer auðvitað eftir aldri þeirra og þroska hvað á að segja,“ segir Skúli. Það sé gott að ítreka að gott sé að flýja aðstæður sem þau óttast og leita til fullorðinna með það.
Hafnarfjörður Lögreglumál Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Skóla- og menntamál Grunnskólar Geðheilbrigði Tengdar fréttir Lögregla herðir leitina að karlmanni sem veitist að börnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú fjögur tilvik þar sem karlmaður veittist að börnum í Hafnarfirði. Þetta segir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. 23. maí 2024 14:02 Árás á tólf ára stúlku fór betur en á horfðist Helgi Ingason, faðir tólf ára gamallar stúlku sem ráðist var á í morgun á leið sinni í skólann í Hafnarfirði, er nýkominn frá lögreglu þar sem hann gaf skýrslu. Hann segir stúlkuna furðu bratta eftir allt sem á gekk. 22. maí 2024 16:00 Mest lesið Leiðtogi Hezbollah allur Erlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Lægð stjórnar veðrinu um helgina Veður Fleiri fréttir Úrbætur á gæsluvarðhaldsúrræði fyrir unglinga og upphaf körfuboltatímabilsins Skoða betri úrræði fyrir unglinga í gæsluvarðhaldi Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Hafði „útdraganlega kylfu“ meðferðis Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Sjá meira
Lögregla herðir leitina að karlmanni sem veitist að börnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú fjögur tilvik þar sem karlmaður veittist að börnum í Hafnarfirði. Þetta segir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. 23. maí 2024 14:02
Árás á tólf ára stúlku fór betur en á horfðist Helgi Ingason, faðir tólf ára gamallar stúlku sem ráðist var á í morgun á leið sinni í skólann í Hafnarfirði, er nýkominn frá lögreglu þar sem hann gaf skýrslu. Hann segir stúlkuna furðu bratta eftir allt sem á gekk. 22. maí 2024 16:00