Forsetaáskorunin: Áhugatöframaður og hefur safnað skeljum og eldspýtustokkum Samúel Karl Ólason skrifar 29. maí 2024 19:01 Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.
Katrín Jakobsdóttir er í framboði til forseta Íslands. Katrín Jakobsdóttir er fædd í Reykjavík 1. febrúar 1976, yngst fjögurra systkina. Hún ólst upp í Álfheimum í Reykjavík og gekk í Langholtsskóla en síðan í Menntaskólann við Sund. Sem barn sat hún ýmist og teiknaði eða las bækur. Í menntaskóla leiddi hún skólafélagið fyrst kvenna í áratug. Tvítug vann hún í Landsbankanum við Sundahöfn og kynntist þá ýmsum íslenskum innflutningsfyrirtækjum en áður vann hún sem bréfberi. Katrínu var snemma treyst til forystu í húsfélögum, einkum þegar stórframkvæmdir voru á döfinni vegna einstakrar lagni til að fá iðnaðarmenn á sitt band. Í Háskóla Íslands lærði hún frönsku og íslensku og varð að lokum sérfróð um íslenskar glæpasögur um það leyti sem „glæpasagnavorið“ mikla var að hefjast. Katrín tók sæti á Reykjavíkurlistanum vorið 2002 fyrir hönd Vinstri-grænna. Haustið 2003 var hún kjörin varaformaður hreyfinarinnar og formaður vorið 2ö13. Ráðherra varð hún fyrst á 33 ára afmælisdag sinn og forsætisráðherra 41 árs. Aðeins tveir hafa gegnt því starfi lengur samfellt síðan Ísland varð lýðveldi árið 1944. Katrín er gift Gunnari Sigvaldasyni og eiga þau saman þrjá syni; Jakob, Illuga og Ármann Áka. Hver er uppáhalds staðurinn þinn á Íslandi? Þingvellir eru nú líklega uppáhalds staðurinn minn en mínir uppáhalds staðir eru ansi víða á Íslandi. Ef þú fengir að ráða, hvaða einu breytingu myndir þú helst vilja gera á forsetaembættinu? Mér finnst forsetaembættið að stofni til gott embætti sem fólki þykir vænt um. En það má vissulega skýra hlutverkið í stjórnarskrá. Segjum sem svo að þú tapir kosningunum og ákveðir í kjölfarið að snúa þér að blönduðum bardagalistum, hvaða lag myndir þú spila áður en þú færir inn í átthyrninginn? Welcome to the Jungle með Guns N‘Roses. Góð hugmynd samt að skella sér í MMA! Er einhver „samsæriskenning“ sem þú telur vera sanna eða mikið til í? Nei, ég hef lært það af langri reynslu að oftast er mjög lítið á bak við samsæriskenningar. Ef þú ætlar að gera vel við þig, hvað fer á diskinn og í glasið? Gott sushi eða lambakjöt er í uppáhaldi. Íslenskt vatn eða hvítvín er svo gott í glasið. Uppáhalds bíómynd? Stjörnustríðsmyndirnar eru uppáhald frá æsku og ég er nú ansi hrifin af nýju Dune-myndunum. Svo er ég Hitchcock-aðdáandi. Hefur þú komist í kast við lögin? Ekki að ráði en fyrir allmörgum árum var ég stoppuð fyrir að tala í síma undir stýri. Guði sé lof fyrir handfrjálsan búnað. Hvert er þitt uppáhalds áhugamál sem gæti þótt skrítið? Ég veit það nú ekki. Ég hef safnað ýmsu, þar á meðal frímerkjum, steinum, gömlum bankabókum, skeljum og eldspýtustokkum. Svo er ég áhugatöframaður. Og ég elska að halda þemaboð, elda eitthvað nýtt og búa til spilunarlista sem endurspeglar þemað. Er skrítið ekki sama og skemmtilegt annars? Uppáhalds sjónvarpsþættir? Elska að horfa á Agöthu Christie-þætti og slökkva aðeins á umhverfinu á meðan. Hver er þín uppáhalds líkamsrækt? Að fara út að hlaupa. Saknar þú einhvers frá Covid-árunum? Allra göngutúranna með drengjunum og Gunnari. Hver er eftirminnilegasta stundin þegar þú þurftir að stíga út fyrir þægindarammann? Ég hef flogið í rafmagnsflugvél! Það var algjörlega magnað augnablik. Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla) Er nokkur sæla sakbitin? Time to say goodbye með Söruh Brightman og Andrea Bocelli þykir til dæmis ekki mjög töff hjá einhverjum en mér finnst það geggjað. Áttu þér draumabíl? Nei á engan draumabíl. Dreymir aðallega um betri almenningssamgöngur! Hvernig slappar þú af? Ég les góða bók eða horfi á einhverja skemmtilega froðu. Ertu með húðflúr? Nei. En ef ég fengi mér húðflúr þá væri það YNWA. Hvað verður fyrst upp á vegg þegar þú sest að á Bessastöðum? Vá, ég er ekki komin þangað í huganum. Kannski einhver af þeim myndum sem við höfum enn ekki hengt upp hér heima! Hvaða þjóðarleiðtoga myndir þú helst vilja hitta og hvað yrði það fyrsta sem þú myndir segja? Ég hef hitt þá nokkra og þeir eru margir mjög ágætir. Mig langar að hitta Klopp sem er nú hálfgerður leiðtogi margra. Ég mundi spyrja hann út í stjórnunarstíl og biðja hann að fara með ræðuna sem hann fer með í hálfleik fyrir liðið. Kanntu á eitthvað hljóðfæri? Nei en ég hef mikinn áhuga á tónlist þannig að það er mjög sorglegt (en kannski ekki fyrir aðra en mig). Hver er uppáhalds tölvuleikurinn þinn? Tetris er eini tölvuleikurinn sem ég hef náð einhverjum árangri í. Ef gerð yrði kvikmynd um þig, hver ætti að leika þig? Skoska leikkonan Laura Fraser. Ef þú yrðir skipreka á eyðieyju, hvaða einn mótframbjóðanda tækir þú með þér? Þann sem er líklegastur til að geta smíðað fleka til að komast af eyjunni! Hefur þú einhverja umdeilda skoðun, sem gæti orðið fréttamál á heimsvísu? Samanber skoðun Guðna Th á pítsuáleggjum. Ég ætla að viðurkenna það hér að ég er Liverpool aðdáandi (sem er auðvitað ekki umdeild skoðun) en hef laumu-aðdáun á Alex Ferguson. Veit ekki hvort ég verð nú rekin úr Liverpool-klúbbnum!
Forsetakosningar 2024 Forsetaáskorun Vísis Tengdar fréttir Forsetaáskorunin: „Held að geimverur séu á meðal vor“ Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. 28. maí 2024 19:00 Forsetaáskorunin: „Fóru Bandaríkjamenn í raun til tunglsins?“ Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. 27. maí 2024 19:01 Forsetaáskorunin: Hefur aldrei lent í slagsmálum Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. 26. maí 2024 19:00 Mest lesið Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Lífið Stjörnulífið: „Who the fuck is Kaleo?“ Lífið „Ekkert okkar grunaði að hann myndi fara þessa leið“ Lífið Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Lífið Harrý rétti fram eins konar sáttahönd Lífið Öldrun í hársverði - Fríða Rut gefur ráð Lífið samstarf Flottasti garður landsins er á Selfossi Lífið samstarf „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Lífið Gordon Ramsay gerir upp Íslandsævintýri Lífið Íslendingar geta verið sóðar Lífið samstarf Fleiri fréttir Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Harrý rétti fram eins konar sáttahönd Stjörnulífið: „Who the fuck is Kaleo?“ Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Gordon Ramsay gerir upp Íslandsævintýri „Ekkert okkar grunaði að hann myndi fara þessa leið“ Destiny's Child með óvænta endurkomu Jóhanna Guðrún og Ólafur giftu sig Myndaveisla: Landinn skemmti sér konunglega í Vaglaskógi Bandaríkjaforseti birtir bull í bunkum Óvæntur Johnny Depp heiðraði Ozzy með Alice Cooper „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Krakkatían: Dvergarnir sjö, klukkuturn og plánetur Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Sjá meira
Forsetaáskorunin: „Held að geimverur séu á meðal vor“ Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. 28. maí 2024 19:00
Forsetaáskorunin: „Fóru Bandaríkjamenn í raun til tunglsins?“ Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. 27. maí 2024 19:01
Forsetaáskorunin: Hefur aldrei lent í slagsmálum Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. 26. maí 2024 19:00