Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 4. júlí 2024 10:06 David hefur áratugareynslu af „hakki.“ Aðsend Netöryggisfyrirtækið Syndis hefur ráðið til starfa sænskan hakkara að nafni David Jacoby, einn reynslumesta sérfræðing Svíþjóðar í netöryggi.
Í tilkynningu frá Syndis kemur fram að David hafi aldarfjórðungsreynslu í netöryggismálum og að ferill hans spanni fjölbreytt hlutverk hjá þekktum fyrirtækjum. Hann hafi meðal annars gegnt lykilhlutverkum hjá Kaspersky Lab, TrueSecAB og Outpost24. „David er þekktur í Svíþjóð en nálgun Davids á netöryggi hefur m.a. verið sýnd í sænska sjónvarpsþættinum „HACKAD“ Þar voru raunverulegar árásir framkvæmdar í beinni útsendingu. Einnig er David vel þekktur fyrirlesari og tekur reglulega þátt í ráðstefnum um allan heim. Undanfarið hefur hann leitt sitt eigið netöryggisfyrirtæki, boðið upp á ráðgjöf og þróað háþróaðar öryggislausnir og áætlanir, sem sýnir áhuga og áherslu hans á nýsköpun,“ segir í tilkynningunni. David er, að sögn Syndis, hakkari í grunninn og hefur því djúpa þekkingu á netárásum, hvernig þær fara fram og hvernig best er að verjast þeim. Stefna Syndis byggi á að skilningur á sóknarleik sé nauðsyn til að tryggja góða vörn. Stöð 2 ræddi við David fyrr á árinu þegar hann var hér á landi á ráðstefnu. Honum tókst að brjótast inn í síma fréttamanns með lítilli fyrirhöfn. „Ég er gríðarlega spenntur að ganga til liðs við Syndis, þegar kemur að hugmyndafræði og sýn þá deilum við þeirri sömu skoðun um að gera internetið að öruggari stað fyrir alla. Netöryggi á ekki að vera munaðarvara heldur aðgengileg þjónusta fyrir alla, því náum ekki bara með hagkvæmum og skilvirkum lausnum heldur líka með því að virkja fólk með okkur og auka þekkingu allra. Teymið hjá Syndis samanstendur af gríðarlega hæfu fólki bæði þegar kemur að sókn og vörn í netöryggi, samsetning sem hefur sýnt sig að skilar góðum árangri við að auka þroska viðskiptavinarins. Ég hef fylgst með Syndis úr fjarlægð í langan tíma en fæ nú loks að vinna með þessu öfluga félagi og hafa áhrif á þessum spennandi tímum,“ er haft eftir David. Anton Már Egilsson forstjóri Syndis býður David Jacoby velkominn til starfa.Aðsend Anton Már Egilsson forstjóri Syndis segir teymið stefna að því að „afhakka plánetuna.“ „Þessi víðtæka reynsla Davids verður ómetanleg þegar við höldum áfram að vaxa á bæði Sænskum og alþjóðlegum vettvangi. Sérfræðiþekking hans mun ekki aðeins auka vöru- og þjónustuframboð okkar, heldur einnig styrkja Syndis með enn breiðari og dýpri þekkingu. Við trúum því að reynsla hans og leiðtogahæfileikar muni auka enn okkar hraða vöxt og við gætum ekki verið ánægðari með að fá David í okkar hóp. Við hlökkum til að nýta sérfræðiþekkingu hans og framtíðarsýn til að styrkja stöðu okkar á nýjum mörkuðum,“ er haft eftir Antoni Má.
Netöryggi Netglæpir Vistaskipti Mest lesið Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið Sjá meira