Ástfangin í Frakklandi!
Fasteignasalinn Heimir Hallgrímsson og kærastan hans Dagmar Silja Kristjönu Svavarsdóttur njóta sólarinnar í fríi í Suður Frakklandi.
Fögnuðu ástinni
Körfuboltakappinn Kristófer Acox og kærastan hans Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir fótboltakona fögnuðu ástinni í brúðkaupi um helgina.
Laugavegur Ultra 2024
Hlaupadrottningarnar Rakel María Hjaltadóttir og Mari Järsk tóku þátt í Laugavegshlaupinu um helgina.
Viðskiptatjórinn Birna María Másdóttir, þekkt sem MC Bibba, náði markmiði sínu í hlaupinu.
Ferðalög og fjölskylda
Tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin birti skemmtilega myndaseríu. Hann kom fram á Kótelettunni um helgina og naut svo lífsins með fjölskyldunni á Hótel Geysi.
Sami kjóll á Spáni og á Seyðisfirði
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra birti mynd af sér í glæsilegum kjól frá sólríku ferðalagi á Spáni.
„Í þessari júlíhaustlægð týnist maður í gömlum myndum af sól og sama kjólnum,“ skrifar Áslaug við myndina og lætur sig dreyma.
Glæsileg í Vestmannaeyjum
Fanney Ingvarsdóttir markaðsfulltrúi Bioeffect klæddi sig upp í íslenska hönnun Yeoman og fagnaði ástinni í brúðkaupi í Vestmannaeyjum um helgina.
Rjómablíða á norðurlandi
Birgitta Líf Björnsdóttir, áhrifavaldur og markaðstjóri World Class, fann sumarið fyrir norðan. Birgitta skellti sér í Skógarböðin ásamt syni sínu Birni Boða.
Kótilettan á Selfossi
Poppstjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson tróð upp á Kótilettunni á Selfossi um helgina.
Tónlistarkonan Birgitta Haukdal lét sig ekki vanta og kom fram ásamt hljómsvetinni Írafár.
Búbblur í Básum
Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona skálaði í kampavín eftir krefjandi fjallgöngu með góðum vinum.
Sérsaumaður kjóll fyrir Símamótið
Poppstjarnan Sigga Ózk kom fram á Símamótinu um helgina. Hún mætti í sérsaumuðum kjól sem var merktur með öllum liðum mótsins sem vakti mikla lukku meðal þáttakenda.
Fjölskydan fagnaði ástinni í þýsku brúðkaupi
Katrín Edda Þorteinsdóttir, verkfræðingur og áhrifavaldur, fagnaði ástinni í brúðkaupi í Þýskalandi.
Nýr áhrifavalda ís
Áhrifavaldarnir Sunneva Einarsdóttir og Birta Líf Ólafsdóttir fögnuðu nýjum ís sem kom á markað í vikunni.