Paide sló út velskt lið í fyrstu umferðinni en þetta er fjórða árið í röð sem liðið er í Sambandsdeildinni. Stjörnumenn eru aftur á móti að spila í Evrópukeppni í fyrsta sinn í þrjú ár. Stjarnan vann norður-írska lið Linfield í fyrstu umferðinni.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.00 á Samsungvellinum í Garðabæ og verður sýndur beint á Bestu deildar rás Stöð 2 Sport.
Við erum að mæta öðruvísi liði
Valur Páll Eiríksson ræddi þennan mikilvæga leik við þjálfara Garðbæinga.
„Þetta er öðruvísi lið og mjög mikið fótboltalið. Linfield voru mjög breskir og leið vel með langa bolta og mikið af fyrirgjöfum. Við erum að mæta öðruvísi liði og það verður mjög gaman,“ sagði Jökull Elísabetarson.
„Við þurfum að nýta heimavöllinn okkar vel, vera klárir og tilbúnir í allt í raun og veru,“ sagði Jökull. Er það kostur eða galli að byrja á heimaleik?
Núna eru bara möguleikarnir ágætir
„Af einhverjum ástæðum þá er ég mjög ánægður með það í þessu einvígi. Ef maður er með afgerandi sterkari andstæðing þá er freistandi að byrja á útivelli og reyna að harka út hagstæða stöðu yfir á heimavöll. Þá áttu heimavöllinn í framlengingu ef svo ber undir,“ sagði Jökull.
„Núna eru bara möguleikarnir ágætir og þá viljum við ná að maxa heimavöllinn okkar eins og hægt er. Fara út með öfluga stöðu, eins öfluga og hægt er. Við náðum því ágætlega síðast og fengum einn á móti markmanni í stöðunni 2-0 sem við hefðum viljað nýta og þá hefðum við allir verið rólegri í leiknum úti,“ sagði Jökull.
Stjörnumenn lentu 3-1 undir í seinni leiknum á móti Linfield úti en tókst að tryggja sig áfram með marki á 88. mínútu.
Mikill lærdómur
„Já þetta var mikill lærdómur. Margt sem við getum tekið úr þeim leik og einvíginu. Við fórum í varnarsinnaðri uppstillingu til þess að loka á fyrirgjafir. Það tókst ekki því það komu jafnmikið ef ekki fleiri fyrirgjafir. Á móti vorum við færri þegar við vorum með boltann,“ sagði Jökull.
„Það var ekki fyrr en við breyttum því í lokin sem við náðum einhverjum tökum á leiknum og komum þessu marki inn. Þegar við breyttum þá leið okkur vel. Mér leið mjög vel að fara inn í framlengingu með þann leik,“ sagði Jökull.
„Leikurinn var óþarflega tæpur úti,“ sagði Jökull. Er hann sigurviss fyrir leikinn á móti Paide?
„Ef að menn eru klárir og hugarfarið er gott. Ef menn eru tilbúnir að fara út og deyja fyrir hver annan þá held ég að við eigum góða möguleika á heimavelli,“ sagði Jökull en það má sjá allt viðtalið hér fyrir neðan.