Körfubolti

Kallaði liðs­fé­laga sinn tík í beinni

Siggeir Ævarsson skrifar
A'ja Wilson og Snoop Dogg sátu saman á úrslitaleiknum karlamegin. Mögulega hefur orðfæri hans smitast yfir á sessunautinn
A'ja Wilson og Snoop Dogg sátu saman á úrslitaleiknum karlamegin. Mögulega hefur orðfæri hans smitast yfir á sessunautinn vísir/Getty

A'ja Wilson, sem fór á kostum í úrslitaleik Ólympíuleikanna í körfuknattleik kvenna, sparaði ekki stóru orðin í viðtali eftir leik á NBC sjónvarpstöðinni.

Kahleah Copper kláraði leikinn á vítalínunni þegar hún setti niður tvö víti með 3,9 sekúndur á klukkunni. Þar með fór munurinn upp í fjögur stig og sigurinn Bandaríkjanna svo gott sem gulltryggður.

Wilson fór fyrir endurkomu Bandaríkjanna í leiknum og endaði stigahæst með 21 stig og tók þar að auki þrettán fráköst. Hún var gripin í viðtal strax eftir leik en þegar hún var spurð um frammistöðu Copper og beðin um að lýsa henni með einu orði stóð ekki á svari: „Þessi tík,“ sagði Wilson og labbaði burt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×