Íslenski boltinn

Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fót­bolti“

Sindri Sverrisson skrifar
Eyþór Aron Wöhler að spila fótbolta í Víkinni. Hann ætlar ekki að spila tónlist þar, alla vega í bráð.
Eyþór Aron Wöhler að spila fótbolta í Víkinni. Hann ætlar ekki að spila tónlist þar, alla vega í bráð. vísir/Anton

Auglýsingu um að tvíeykið Húbba Búbba, með KR-inginn Eyþór Aron Wöhler innanborðs, myndi skemmta Víkingum fyrir bikarúrslitaleikinn á laugardag var snarlega breytt í gær. Eyþór segist gæta þess að láta skemmtanahald ekki trufla fótboltann.

Húbba Búbba samanstendur af þeim Eyþóri og Kristali Mána Ingasyni, U21-landsliðsmanni og leikmanni Sönderjyske í Danmörku. Þeir vöktu nokkra athygli, ekki síst á TikTok, eftir útgáfu síns fyrsta lags í byrjun júlí, sem þeir gerðu með þriðja fótboltamanninum, Loga Tómassyni (Luigi).

Víkingar auglýstu á samfélagsmiðlum að Húbba Búbba yrði hluti af veglegri upphitun þeirra fyrir bikarúrslitaleikinn við KA á laugardaginn en urðu að breyta auglýsingunni. 

Svona var dagskráin sem Víkingar auglýstu í fyrstu. Húbba Búbba var svo kippt út skömmu síðar.Skjáskot/@vikingurfc

Kristall, sem er fyrrverandi leikmaður Víkings, mun vera í Danmörku og Hörður Ágústsson, markaðs- og viðburðastjóri Víkings, segir það hafa komið í ljós að tímasetningin hentaði Eyþóri ekki. Sjálfur segir Eyþór:

„Ég er fyrst og fremst KR-ingur, svo það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti. Ég er ekki að fara að taka lagið þarna. Það er bara svoleiðis.“

Kveðst ekki hafa talið við hæfi að spila í Víkinni

Hann hlýtur þó að hafa sagt já fyrst, úr því að auglýsingin fór í loftið?

„Nei. Það var ekki búið að staðfesta neitt. Það var búið að hafa samband við mig varðandi að taka lagið þarna en á endanum taldi ég það ekki við hæfi.“

Var það þá ekki þannig að það félli í grýttan jarðveg hjá vinnuveitendum hans, eða þjálfaranum Óskari Hrafni Þorvaldssyni, að hann tæki að sér að skemmta Víkingum daginn fyrir þýðingarmikinn fallslag við Vestra? Að þess vegna hefði hann þurft að hætta við?

„Ég taldi þetta bara ekki við hæfi. Ég var ekkert búinn að ræða um þetta við Óskar.“

Eyþór Aron Wöhler hefur aðeins fengið að spila þrjá leiki í byrjunarliði KR í Bestu deildinni í sumar, en komið við sögu í alls 18 deildarleikjum.vísir/Ernir

„Kannski ný­móðins fyrir suma að sjá knatt­spyrnu­mann gera þetta“

Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net, kom inn á það í hlaðvarpsþættinum Innkastinu í vikunni að „slúðursögur“ væru um það að menn í Vesturbæ væru óánægðir með Eyþór – að hann skilaði litlu á fótboltavellinum á meðan að hann væri úti um allt á samfélagsmiðlum. 

Eyþór, sem kom til KR í apríl frá Breiðabliki og hefur spilað 18 deildarleiki í sumar, þar af þó aðeins þrjá í byrjunarliði, gefur lítið fyrir það:

„Ég þarf hafa í mig og á líkt og aðrir. Sumir vinna níu til fimm meðfram boltanum en ég kýs að stökkva á svið og taka nokkur lög. Það eru ekki allir steyptir í sama form og það er kannski nýmóðins fyrir suma að sjá knattspyrnumann gera þetta en við munum kannski sjá fleiri dæmi með núverandi og komandi kynslóðum. Þegar allt kemur til alls er fótboltinn og félagið númer 1, 2 og 3. Vissulega er þetta ákveðið púsluspil á köflum en knattspyrnan gengur ávallt fyrir,“ segir Eyþór.


Tengdar fréttir

Fótboltamenn „örva skapandi löngun“ og mynda nýtt tónlistartvíeyki

Knattspyrnumennirnir Eyþór Aron Wöhler og Kristall Máni Ingason tóku óvænt höndum saman í hljóðveri og hafa nú gefið út glænýjan sumarsmell. Þeir leituðu til þekkts nafns í fótbolta- og tónlistarheiminum sér til auka, Loga Tómasson, einnig þekktur sem Luigi.

Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest

Það var rafmögnuð orka á Októberfest SHÍ síðastliðna helgi þar sem fjöldi úrvals tónlistarmanna steig á stokk fyrir stútfullum sal af stúdentum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×