Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarki Sigurðsson skrifar 22. september 2024 19:13 Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir það góða hugmynd að afnema stimpilgjöld. Vísir/Einar Verkalýðshreyfingin fagnar frumvarpi sjálfstæðismanna um afnám fasteignagjalda. Formaður VR segir útilokað að þingmenn fái nokkurn tímann sæti við borðið við gerð kjarasamninga.
Nú í tíunda sinn reyna þingmenn Sjálfstæðisflokksins að koma frumvarpi í gegn um afnám stimpilgjalds við kaup einstaklinga á fasteignum. Málið hefur aldrei komist lengra en í fyrstu umræðu en sjálfstæðismenn eru bjartsýnir á að ná þessu í gegn. Sem stendur þurfa kaupendur íbúðarhúsnæðis að greiða 0,8 prósent kaupverðs í stimpilgjald sem þingmennirnir segja úrelt og óþarfi. Formaður VR segir verkalýðshreyfinguna hrifna af þessari hugmynd. „Hins vegar mætti, ef þingmönnum stjórnarflokkanna er alvara í því að bæta stöðu á húsnæðismarkaði, þá mætti þessu fylgja neikvæðir hvatar fyrir lögaðila og þá sem eru að kaupa margar fasteignir. Að það séu neikvæðir skattalegir hvatar til staðar þar þannig að húsnæðið sem kemur á markaði sé eingöngu þá ætlað almenningi og þeim sem sárvantar að komast í öruggt húsaskjól,“ segir Ragnar. Þingmenn fái aldrei sæti við kjarasamningsborðið Vilhjálmur Árnason, fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, sagði í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar um þetta mál að mögulega hafi vantað að leggja áherslu á afnám stimpilgjalda við kjarasamningsborðið. Þingmenn hafi því miður ekki sæti við borðið þó kjarasamningar hafi mikil áhrif á störf þingsins. „Hugmynd um að þingmenn komi með beinum hætti að kjarasamningum er auðvitað fráleit hugmynd og myndi aldrei ganga upp. Við værum örugglega ekki búin að gera kjarasamning síðustu tíu árin ef svo væri,“ segir Ragnar. Sérðu fyrir þér einhverskonar fyrirkomulag þar sem þingmenn hafa eitthvað að segja um kjarasamningagerð, þótt þeir myndu ekki sitja beint við borðið? „Að sjálfsögðu ekki. Þetta er flókið ferli og viðsemjendur okkar eru auðvitað Samtök atvinnulífsins, eða þau fyrirtæki sem eru þar undir. Þetta er hugmynd sem myndi aldrei ganga upp. Útilokað, útilokað,“ segir Ragnar.
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Húsnæðismál Fasteignamarkaður Neytendur Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Fleiri fréttir Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Sjá meira