Menning

Marg­menni í sköpunar­gleði og stuði á safninu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Anna Líndal er meðal þeirra listamanna sem voru að opna sýningu á Listasafni Árnesinga.
Anna Líndal er meðal þeirra listamanna sem voru að opna sýningu á Listasafni Árnesinga. Helena Stefánsdóttir

Það var líf og fjör á Listasafni Árnesinga á dögunum þegar fjórar nýjar sýningar opnuðu samtímis. Fjöldi fólks mætti á svæðið og góð stemning myndaðist á safninu.

Gestir og gangandi nutu listarinnar til hins ítrasta og gæddu sér á snittum og súkkulaði. Safnið fékk styrk frá Barnamenningarsjóði og List fyrir alla til að bjóða öllum skólum í Árnessýslu til að sjá sýninguna.

Eftirfarandi sýningar eru nú í gangi:

„Í sal 1 er það ný innsetning eftir Sigurð Guðjónsson, Hljóðróf og í sal 2 eru ný verk eftir Þórdísi Jóhannesdóttur. Í sal 3 er samsýningin Lífrænar Hringrásir sem teygir sig yfir í anddyri safnsins, á lóð safnsins, í Hveragarðinn, að Varmá og upp í Kambana.

Listamennirnir eru Anna Líndal, Elísabet Jökulsdóttir & Matthías Rúnar Sigurðsson, Freyja Þórsdóttir, Heather Barnett, Herwig Turk, Ilana Halperin, Jennifer Helia DeFelice, Magnea Magnúsdóttir, Patrick Bergeron, Pétur Thomsen, Skade Henriksen og Þorgerður Ólafsdóttir.

Í sal 4 er sýningin Volvox (Kyllir). Hún er samvinnuverkefni listafólks og vísindamanna frá Hydrodynamics Laboratory í Ecole Polytechnique, Light, Matter and Interfaces rannsóknarstofunni og Institute of Physical Chemistry í Paris-Saclay háskólanum og Institut Polytechnique de Paris og innblásið af samnefndum, örsmáum þörungum,“ segir í fréttatilkynningu en safnið er opið alla daga nema mánudaga og frítt inn.

Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: 

Gestir skoða verk Þórdísar.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Magnús Tumi Guðmundsson og Anna Líndal.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Þetta líður hjá, við Varmá eftir Elísabet Jökulsdóttir og Matthías Rúnar SIgurðsson.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Dagmar Ísabella Bergsdóttir og Oliwia Banach í stuði.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Listaháskólanemar stúderuðu sýninguna.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Maximilian Helia, Silva Blandon og Sölvi Scheving.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Verk Sigurðar Guðjónssonar.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Volvox innsetning frá París í sal fjögur.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Þórdís Jóhannesdóttir.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Patrick Bergeron og Freyja Þórsdóttir á spjalli.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Tom Georgel frá Berlín á spjalli aðra listamenn sýninganna.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Listamennirnir Jennifer Helia Defelice, Finnbogi Pétursson og Joost Rekveld.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Ólafur Þórir Auðunsson, Kristín Scheving safnstjóri, Edda Kristín Sigurjónsdóttir og Helena Stefánsdóttir.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Snittur frá Matkránni slóu í gegn.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Anna Líndal og listin.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Súkkulaði úr Bananahúsinu í Hveragerði gert af Eddu Kristínu Sigurjónsdóttur.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir
Listakonan Thomasine Giesecke frá París.Helena Stefánsdóttir/Helena Stefánsdóttir
Heather Barnett ein af listamönnunum en hún er búsett í London.Listasafn Árnesinga/Helena Stefánsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×