Mbappé úr leik næstu vikurnar Sindri Sverrisson skrifar 25. september 2024 11:59 Kylian Mbappé verður ekki með Real Madrid að nýju fyrr en eftir landsleikjahléið, í seinni hluta október. Getty/Denis Doyle Franska knattspyrnustjarnan Kylian Mbappé mun ekki geta látið ljós sitt skína með Evrópumeisturum Real Madrid næstu þrjár vikurnar, vegna meiðsla.
Mbappé er meiddur í læri. Hann fór af velli á 80. mínútu í 3-2 sigri gegn Alavés, eftir að hafa kvartað undan óþægindum í fæti. Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, sagði eftir leikinn að Mbappé hefði fengið högg og beðið um skiptingu, en nú hefur félagið staðfest meiðsli kappans. Samkvæmt upplýsingum ESPN verður Frakkinn frá keppni í þrjár vikur, eins og fyrr segir, og það er að minnsta kosti á hreinu að hann missir af fyrsta grannaslagnum við Atlético Madrid um helgina. Mbappé verður ekki heldur með gegn Lille í Meistaradeild Evrópu og í deildarleik gegn Villarreal, en ætti að geta snúið aftur eftir landsleikjahléið í október. Mbappé hefur þegar skorað fimm mörk fyrir sitt nýja félag í spænsku deildinni. Real situr þar í 2. sæti með 17 stig eftir sjö leiki, fimm stigum fyrir ofan Atlético sem á leik til góða. Börsungar eru efstir með 18 stig og einnig með leik til góða gegn Real.
Spænski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Xhaka sekur fyrir að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ Sjá meira