Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. september 2024 20:55 Diogo Jota skoraði fyrstu tvö mörk Liverpool í kvöld. Alex Livesey/Getty Images Liverpool lenti undir á Anfield þegar West Ham United kom í heimsókn í enska deildarbikar karla í knattspyrnu. Heimamenn svöruðu hins vegar með fimm mörkum og eru komnir áfram. Jarell Quansah varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og gestirnir því komnir yfir um miðbik fyrri hálfleiks. Forystuna lifði þó aðeins í fjórar mínútur en þá hafði Diogo Jota jafnað metin og staðan 1-1 í hálfleik. Jota kom Liverpool yfir strax í upphafi síðari hálfleiks og Mohamed Salah bætti við því þriðja á 74. mínútu. Ekki löngu síðar fékk Edson Alvarez sitt annað gula spjald í liði gestanna og luku þeir leik manni færri. Það nýtti Liverpool sér en Cody Gakpo skoraði tvívegis og Liverpool vann gríðarlega öruggan 5-1 sigur. Enski boltinn Fótbolti