Enski boltinn

„Þá er ég mjög heimskur þjálfari“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Slot var hress á blaðamannafundi fyrir leik morgundagsins.
Slot var hress á blaðamannafundi fyrir leik morgundagsins. Carl Recine/Getty Images

Liverpool á fyrir höndum enn einn hádegisleik liðsins í ensku úrvalsdeildinni er það sækir Crystal Palace heim á Selhurst Park á morgun. Jurgen Klopp kvartaði gjarnan undan því við fjölmiðla en eftirmaður hans í starfi nálgast það öðruvísi.

Klopp var gjarn á að kvarta yfir því að eiga leik í hádegi á laugardegi sem gerðist reglulega þegar Liverpool hafði spilað Evrópuleik í miðri viku. TNT Sport (áður BT Sport) er rásin sem á réttinn á hádegisleikjum á Bretlandi og getur pantað þá leiki sem stöðin vill og virðist Liverpool oft hafa orðið fyrir valinu.

Reglur ensku úrvalsdeildarinnar segja til um að lið sem spiluðu útileik í Evrópukeppni megi ekki spila í hádegi á laugardegi og TNT því heimilt að velja Liverpool í hvert skipti sem félagið leikur á Anfield í miðri viku.

„Almennt er það þannig í hollensku deildinni, þar sem ég var, að menn eru meðvitaðri um þetta og reyna að hjálpa liðunum meira en hér. En sanngirninnar vegna gagnvart enska knattspyrnusambandinu er leikjaálagið meira hér en þar,“ segir Slot um málið.

„Ég held líka að þetta hafi með fjölmiðlana að gera. Það er ástæðan fyrir því að við spilum oft í hádeginu því sjónvarpsstöðvarnar geta valið sér lið og í níu af hverjum tíu skiptum velja menn Liverpool,“ bætir hann við.

Útivellirnir málið fremur en tímasetningin

Gengi Púllara hefur verið misjafnt í hádegisleikjunum en þá leiki spilar liðið gjarnan á útivelli. Slot segir það hafa meira að gera en tímasetninguna.

„Við unnum aðeins 10 af 18 útileikjum á síðasta tímabili. Það er hægt að tala um að illa gangi þegar leikirnir eru í hádeginu eða að það sé erfitt að spila á útivelli. Ég held það hafi með það síðarnefnda að gera í þessari sterku deild,“

„Ef 12:30 væri erfiður tími til að sýna sitt rétta andlit, þá er ég mjög heimskur þjálfari vegna þess að við æfum klukkan 12 á hverjum degi! Ég sé ekki pælinguna á bakvið það að erfiðara sé að gera vel á þessum tíma,“ segir Slot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×