Lífið

Liljan er vin­sælasta lagið á Dal­vík

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Það er alltaf mjög góð þátttaka í söngstundunum á Dalbæ enda skemmtileg hefð á heimilinu.
Það er alltaf mjög góð þátttaka í söngstundunum á Dalbæ enda skemmtileg hefð á heimilinu. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Eitt það allra skemmtilegasta sem heimilisfólkið á hjúkrunarheimilinu Dalbæ á Dalvík gerir er að taka þátt í söngstund einu sinni viku þar sem allir syngja með sínu nefi og njóta lífsins og samverunnar við hvert annað um leið.

Það var yndislegt að fá að taka þátt í söngstund á Dalbæ þar sem fólkið er með sína söngbók og svo er bara sungið og sungið, stundum með undirspili og stundum hópurinn saman án undirspils. Starfsfólkið hefur ekki síður gaman af þessum stundum.

Þetta gefur fólkinu greinilega mikið?

„Já, mjög mikið, það eru alltaf allir mjög mikið brosandi, sem koma. Það er kaffi beint eftir söngstundina og það eru allir mjög mikið brosandi eftir þetta. Það er alltaf full stofan, allir að syngja með,” segir Selma Rut Guðmundsdóttir, starfsmaður á Dalbæ.

Selma Rut Guðmundsdóttir, starfsmaður á Dalbæ, sem segir söngstundirnar gefa fólkinu mikið á heimilinu.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Hvað segir þú, er ekki gaman hér í söngstundinni ?

„Jú, jú, þetta er mjög gaman, við erum að syngja allt mögulegt upp úr þessari bók,” segir Ástdís Lilja Óskarsdóttir heimilismaður á Dalbæ en hún frá Kóngsstöðum í Skíðadal .

Ástdís Lilja Óskarsdóttir, heimilismaður á Dalbæ en hún frá Kóngsstöðum í Skíðadal og tekur alltaf þátt í söngstundinni.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Eins og gefur að skilja heyrist mis vel í söngfólkinu, sumir beita sér mjög mikið á meðan aðrir eru rólegri.

Og þú syngur manna hæst eða hvað?

„Já, ég geri það, þessa rödd fékk hjá föður mínum. Það er alltaf gaman að syngja, ég bíð eftir þessum stundum,” segir Þóra Jóna Finnsdóttir íbúi á Dalvík, sem er í dagdvöl á Dalbæ.

Þóra Jóna Finnsdóttir íbúi á Dalvík, sem er í dagdvöl á Dalbæ og bíður alltaf eftir söngstundinni í hverri viku enda að syngja er það skemmtilegasta sem hún gerir.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En rétt að skjóta inn í ótengt söngnum, veðurklúbburinn á Dalbæ er örugglega langþekktasti veðurklúbbur landsins og þó víðar væri leitað en klúbburinn spáði einmitt í lok sumars góðu hausti og vetri fram að jólum, að það virðist allt vera að rætast.

„Það er nú ótrúlega oft, sem þau eru glúrin og kemur eitthvað skemmtilegt frá þeim en þau verða líka spæld þegar spáin rætist illa,” segir Elísa Rán Ingvarsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri á Dalbæ.

Elísa Rán Ingvarsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri á Dalbæ.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En aftur að sönghópnum, ef eitthvað lag er vinsælt á Dalbæ þá er það Liljan, það er sungið á hverri einustu söngstund.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.